Stéttarfélög eru frjáls félagasamtök launafólks hvers kjarnahlutverk er að gæta hagsmuna félagsmanna sinna og launafólks almennt gagnvart atvinnurekendum og samtökum þeirra m.a. með gerð kjarasamninga. Þau eru einnig málsvarar þeirra hagsmuna sem þau gæta gagnvart stjórnvöldum. Þau eru frjáls félög sérstaks eðlis og njóta ríkrar verndar í stjórnarskrá, lögum og alþjóðasamþykktum sem Ísland á aðild að og dómstólar og stjórnvöld hafa takmarkaðar heimildir til íhlutunar í starfsemi þeirra.[i]
Stéttarfélög hafa að lögum mikilvægu hlutverki að gegna á vinnumarkaði, í afkomu launafólks og í efnahagslífi hverrar þjóðar. Gagnvart atvinnurekendum og samtökum þeirra hafa þau heimild en jafnframt skyldu til sameiginlegrar samningsgerðar (kjarasamningsgerðar ) um starfskjör launafólks og jafnframt heimild til þess að beita valdi (verkföllum) til þess að þvinga fram lögmætar kjarakröfur. Hefðbundin starfsemi stéttarfélaga miðar að því að treysta afkomu og öryggi launafólks og skiptir um leið efnahag fyrirtækja og þjóðarbús miklu.
[i] Hugleiðingar um íhlutunarrétt dómstóla og samkeppnisyfirvalda í málefni verkalýðsfélaga. Magnús M. Norðdahl hrl. Tímarit lögfræðinga 01 2002.