Stefna ASÍ

Alþýðusamband Íslands er heildarsamtök launafólks á Íslandi og beitir sér fyrir velferð og lífsgæðum landsmanna. Það berst fyrir bættum kjörum, jöfnum rétti, sömu launum fyrir jafnverðmæt störf og leggur sérstaka áherslu á jafnan rétt óháð kyni, búsetu og þjóðerni. Samtökin gera þá kröfu til íslensks velferðarsamfélags að þar njóti allir sömu tækifæra til menntunar og heilbrigðisþjónustu. ASÍ vill stuðla að öflugu og alþjóðlega samkeppnishæfu atvinnulífi sem gefur launafólki tækifæri til símenntunar og starfsþroska. Samtökin beita sér ennfremur fyrir því að verðmætasköpun atvinnulífsins skiptist með réttlátum hætti og skipi um leið íslensku samfélagi í fremstu röð á meðal þjóða heims.

Á Íslandi á enginn að líða skort. ASÍ leggur áherslu á aðgengi allra vinnufúsra handa að fullri atvinnu og gerir kröfu um vandaða samfélagsþjónustu sem tryggir öllum tækifæri til menntunar og starfa, einkum ungu fjölskyldufólki. ASÍ beitir sér fyrir sjálfsögðum rétti aldraðra og öryrkja til lífsgæða og jöfnu aðgengi barna og unglinga að þróttmiklu og þroskandi æskulýðsstarfi.

Bætt lífskjör í landinu eru aflvaki blómlegrar menningarstarfsemi, gæða fjölskyldulífsins og heilbrigðara samfélags. ASÍ gerir sér grein fyrir styrk heildarinnar og kappkostar að vinna daglegt starf sitt með þeim hætti að launafólk fylki sér að baki samtökunum, jafnt í varðstöðu þeirra sem sókn, og leggist með þeim á árar til þess að gera gott samfélag ennþá betra.

Hér fyrir neðan er stefna ASÍ í nokkrum mikilvægum málaflokkum eins og hún var samþykkt á 43. þingi ASÍ í október 2018.

Tekjuskipting og jöfnuður
Sækja skjal
Húsnæðismál
Sækja skjal
Heilbrigðisþjónusta og velferð
Sækja skjal
Jafnvægi atvinnuþátttöku og einkalífs
Sækja skjal
Tækniþróun og skipulag vinnunnar
Sækja skjal
ÖLL STEFNUMÁL ASÍ

Stefnumál

Alþýðusamband Íslands er heildarsamtök launafólks á Íslandi og beitir sér fyrir velferð og lífsgæðum landsmanna. Það berst fyrir bættum kjörum, jöfnum rétti, sömu launum fyrir jafnverðmæt störf og leggur sérstaka áherslu á jafnan rétt óháð kyni, búsetu og þjóðerni.

Alþjóðamál

ASÍ tekur þátt í samstarfi verkalýðshreyfingarinnar á norrænum, evrópskum og alþjóðlegum vettvangi.
Skoða stefnu

Atvinnumál

ASÍ styður atvinnuuppbyggingu með störfum sem standa undir góðum lífskjörum
Skoða stefnu

Vinnuvernd

Verkalýðshreyfingin sér til þess að staðið sé við skuldbindingar um vinnuvernd.
Skoða stefnu

Húsnæðismál

Öruggt og gott húsnæði á viðráðanlegum kjörum er grundvallarþáttur í velferð launafólks.
Skoða stefnu

Lífeyrismál

Við leggjum saman í sjóð sem er ávaxtaður til að greiða okkur öllum lífeyri til æviloka.
Skoða stefnu

Menntamál

Menntun í atvinnulífinu er hagsmuna­mál og viðfangsefni launafólks og atvinnurekenda.
Skoða stefnu

Skattamál

Í stuttu máli styður ASÍ að fólk greiði skatta eftir efnum en fái grunnþjónustu eftir þörfum.
Skoða stefnu

Umhverfismál

Við viljum sjálfbært samfélag þar sem velferð okkar rýrir ekki velferð komandi kynslóða.
Skoða stefnu

Jafnréttis- og fjölskyldumál

Jafn réttur og tækifæri til launa og starfa eru grundvallar­mannréttindi.
Skoða stefnu

Velferðarmál

Velferðarkerfið á að tryggja grundvallarmannréttindi og er forsenda félagslegrar samheldni.
Skoða stefnu

Kynntu þér málin betur. Skoða stefnur ASÍ