Fjármögnun heilbrigðisþjónustunnar

ASÍ og BSRB boða til opins fundar um fjármögnun heilbrigðisþjónustunnar fimmtudaginn 13. febrúar á Hótel Natura. Fundurinn verður milli klukkan 8:30 og 10:00 en boðið verður upp á morgunkaffi og léttar veitinga frá klukkan 8:00.

Fyrirlesarar á fundinum verða Birgir Jakobsson aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra, María Heimisdóttir forstjóri Sjúkratrygginga Íslands og Dr. Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir stjórnsýslufræðingur. Einnig verða stutt innslög frá Páli Matthíassyni forstjóra Landsspítala og Bjarna Smára Jónassyni forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri.

Fundinum verður streymt á vefsíðum ASÍ og BSRB fyrir þá sem ekki eiga heimangengt.

Dagskrá:

8.30 – 8.40:     Inngangsorð - Drífa Snædal, forseti ASÍ

8.40 – 9.00:     Forgangsröðun fjármuna í heilbrigðisþjónustu - Birgir Jakobsson, aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra

9.00 – 9.30:     Hvað stýrir þróun kostnaðar í heilbrigðisþjónustu? - María Heimisdóttir,  forstjóri Sjúkratrygginga

9.30-9.50:       Áhrif mismunandi fjármögnunarmódela í heilbrigðisþjónustu og stjórntæki stjórnvalda - Dr. Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir stjórnsýslufræðingur

Boðið verður upp á létt morgunkaffi við upphaf fundar.

Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.

Hægt er að nálgast nánari upplýsingar og skrá sig til leiks á Facebook-viðburði fundarins.