Munurinn á lægsta og algengasta bensínverði Atlantsolíu, N1, Orkunnar og ÓB nam 29 til 31 kr. á lítra hinn 17. nóvember. Lægsta verð þessara félaga var í boði á 38 stöðvum, þeim sömu og fyrir ári. Að stöð Costco meðtalinni voru 39 af 245 bensínstöðvum landsins í lægsta verðflokki samanburðarins, eða 16%. Hlutfallið var um þriðjungur á höfuðborgarsvæðinu en 8% utan þess.
Á þeim 38 stöðvum þar sem Atlantsolía, N1, Orkan og ÓB buðu lægsta verð kostaði lítrinn 251,0 til 251,6 kr. Algengasta verð þessara félaga var hins vegar 280,0 til 282,4 kr. Verðmunurinn innan sama félags nam því um 1.450 til 1.550 kr. við kaup á 50 lítrum.
Afsláttarkjör draga úr verðmuninum, en eftir sem áður munar 17 til 21 kr. á lítra á algengasta verði eftir afslátt og lægsta verði félaganna fjögurra. Hjá Orkunni var algengasta verðið til dæmis 280 kr. á lítra. Með 12 kr. afslætti varð það 268 kr., samanborið við 251 kr. á ódýrustu stöðvum félagsins. Á stöðvum félaganna fjögurra með lægsta verð fæst enginn viðbótarafsláttur.
Hjá Olís voru fjögur verðþrep, frá 272,7 til 281,6 kr. á lítra fyrir afslátt. Algengasta verðið var 281,6 kr., eða 8,9 kr. hærra en lægsta verð félagsins. Stöðvar Olís falla þó ekki í lægsta verðflokk samanburðarins.
Hjá Costco kostaði bensínlítrinn 237,1 kr., en þar þarf aðild til að kaupa eldsneyti.
Lægsta verðið einkum á höfuðborgarsvæðinu
Á höfuðborgarsvæðinu voru 25 af 76 stöðvum í lægsta verðflokki samanburðarins, að Costco meðtöldu. Utan höfuðborgarsvæðisins voru þær 14 af 169 og voru allar á Akureyri, í Borgarnesi, á Selfossi eða á Laugarbakka.
Á 25 öðrum stöðvum var skráð verð lægra en algengasta verð viðkomandi félags. Þær voru allar utan höfuðborgarsvæðisins. Á hinum stöðvunum, 181 talsins, var verðið jafnhátt algengasta verði félagsins eða hærra. Hlutföllin miðast við fjölda stöðva og segja því ekki til um hversu stór hluti bensíns er seldur á hverju verði.
Lítil breyting frá fyrra ári
Sömu 38 stöðvar Atlantsolíu, N1, Orkunnar og ÓB buðu lægsta verð félaganna 11. nóvember 2025 og 17. nóvember 2026. Á þeim 223 stöðvum sem voru í gögnunum bæði árin, eða 92%, hafði munurinn frá lægsta verði viðkomandi félags breyst um eina krónu eða minna.
Verðmunurinn sjálfur hefur einnig lítið breyst. Hjá Atlantsolíu, Orkunni og ÓB hefur munurinn á lægsta og algengasta verði verið um 29 kr. á lítra frá sumrinu 2023. Við tímabundna lækkun virðisaukaskatts sumarið 2026 minnkaði hann í um 26 kr. Án virðisaukaskatts hélst munurinn hins vegar um 23 kr. á lítra.
Verðþróun og aðgengi að lægsta verði
Í nýlegri umfjöllun ASÍ, Lækkun heimsmarkaðsverðs ekki enn skilað sér á bensíndælum, var fjallað um þróun bensínverðs. Umfjöllun ASÍ um þróun bensínverðs byggist almennt á lægsta verði hvers félags. Með því er fylgst með breytingum á sama verðviðmiði yfir tíma. Hjá Atlantsolíu, Orkunni og ÓB hefur munurinn á lægsta og algengasta verði haldist nær óbreyttur um árabil. Breytingar á lægsta verði þessara félaga endurspegla því einnig í meginatriðum breytingar í krónum á algengasta verði þeirra.
Aðgengi að lægsta verðinu er hins vegar mismunandi eftir búsetu. Eins og samanburðurinn sýnir eru stöðvar með lægsta verð einkum á höfuðborgarsvæðinu og aðeins á fjórum stöðum utan þess. Á stöðvum með algengasta verð er bensín dýrara þótt tekið sé tillit til afsláttarkjara. Svipuð verðþróun milli stöðva getur þannig farið saman við viðvarandi mun á því verði sem neytendum stendur til boða.
Myndin hér að neðan sýnir dreifingu skráðs bensínverðs eftir félögum og staðsetningu stöðvanna. Með því að færa músina yfir súlu eða stöð má sjá hvar hvert verð er í boði.
Gögn og aðferð
Samanburðurinn byggist á síðasta skráða verði á 95 oktana bensíni á 245 stöðvum í Gasvaktinni hinn 17. nóvember 2026. Notað er skráð verð fyrir afslætti, nema í sérstökum samanburði á verði eftir afslátt. Upplýsingar um afsláttarkjör byggjast á athugun ASÍ sumarið 2026 og skráningu Gasvaktarinnar. Algengasta verð er það verð sem flestar stöðvar hvers félags skrá. Lægsti verðflokkur samanburðarins tekur til stöðva Atlantsolíu, N1, Orkunnar og ÓB sem bjóða lægsta verð síns félags án viðbótarafslátta, auk stöðvar Costco. Olís er ekki í þeim flokki. Skipting eftir svæðum byggist á hnitum stöðva og sveitarfélagamörkum. Samanburður við fyrra ár miðast við 11. nóvember 2025. Útreikningar eru á vegum ASÍ.





