Tengill á forsíðu ASÍ
Leit
  • IS
  • EN
  • PL
  • Um vinnuréttarvefinn
    • Um vinnuréttarvefinn
    Vinnuréttur
    • Réttindi og skyldur
    • Stéttarfélög og vinnudeilur
    • Trúnaðarmenn stéttarfélaga
    • Fæðingar- og foreldraorlof
    • Evrópskur vinnuréttur
    • Alþjóðlegur vinnuréttur
    • Icelandic labour law
  • Fréttir
    • Almennar fréttir
    • Fréttir af kjarasamningum
    • Verðlagsfréttir
    • COVID 19 - Upplýsingar fyrir launafólk
    • Kófið og hrunið: lærdómur og leiðin fram á við 
    Útgáfa
    • Skýrslur og bæklingar
    • Mánaðaryfirlit stefnumótunar og greiningar
    • Vinnan (vefrit)
    • Merki
    Miðlun
    • Sjónvarp ASÍ
    • Hlaðvarp
    • Streymi
    Samstarfsverkefni
    • Bjarg íbúðafélag
    • Einn réttur – ekkert svindl!
    • Volunteering in Iceland
    9. þing ASÍ-UNG / Stefna ASÍ-UNG
    • Viðburðir
  • Hlutverk og saga
    • Hvað er ASÍ?
    • Stefna
    • Verðlagseftirlit ASÍ
    • Umsagnir um þingmál
    • Listasafn ASÍ
    • Saga ASÍ
    • Persónuverndaryfirlýsing ASÍ
    Skipulag
    • Aðildarfélög
    • Þing
    • Miðstjórn
    • Forseti
    • Skrifstofa
    • Lög ASÍ, reglugerðir og reglur
    • ASÍ-UNG
    Starfsfólk
    • Starfsfólk
    Fræðsla
    • Félagsmálaskóli alþýðu
    • Skólakynningar
    • Minningarsjóður Eðvarðs Sigurðssonar
    Samstarf
    • Norðurlönd
    • Evrópa
    • Alþjóðlegt samstarf
Language:
  • Íslenska (IS)
  • English (EN)
  • Polski (PL)
ALGENG LEITARORÐ
  • Vinnuréttarvefur
  • Fréttir og útgáfa
  • Um ASÍ
  • Skýrslur og bæklingar
  1. Forsíða
  2. Fréttir og útgáfa
  3. Fréttir
  4. Verðlagsfréttir
  5. Munur á stýrivöxtum og vöxtum af húsnæðislánum aukist
  • Vinnuréttarvefur
    • Um vinnuréttarvefinn
      • Um vinnuréttarvefinn
    • Vinnuréttur
      • Réttindi og skyldur
        • Ráðningarsambönd – stofnun og eðli
          • Stofnun ráðningarsambands og ráðningarsamningar
            • Hvenær verður ráðningarsamband til
            • Ráðningarsamningar – form og efni
            • Áunnin réttindi
            • Val á starfsmönnum
            • Upplýsingagjöf um persónuleg málefni
            • Krafa um framvísun sakarvottorðs
            • Sérstök og óvanaleg samningsákvæði
            • Samkeppnisákvæði
            • Starfsmaður leigir íbúðarhúsnæði af atvinnurekanda
            • Sjómenn og iðnnemar
            • Ráðningarsamningar – hvað ber að varast við gerð þeirra
          • Hlutastörf
            • Hvað er hlutastarf
            • Skyldur atvinnurekanda
            • Uppsögn
            • Lög nr. 10/2004 um starfsmenn í hlutastörfum
            • Tilskipun Evrópusambandsins um hlutastörf
          • Tímabundnar ráðningar
            • Uppsögn
            • Samspil tímabundinnar ráðningar og ótímabundinnar
            • Vernd gegn mismunun
            • Framlenging eða endurnýjun
            • Upplýsingagjöf og endurmenntun
            • Sönnun fyrir tímabundinni ráðningu
          • Fjarvinna
            • Upptaka fjarvinnu
            • Ráðningarkjör og réttindi
            • Skipulag vinnunnar og þjálfun
            • Búnaður
            • Aðbúnaður og hollustuhættir
            • Vernd gagna og einkalífs
          • Breyting á ráðningarkjörum
            • Atvinnurekandi
            • Starfsmaður
            • Tilflutningur í starfi
          • Launamaður eða verktaki
            • Dómaframkvæmd
          • Starfsmannaleigur
          • Nýtt skipulag vinnunnar
          • Vinnustaðaskírteini og vinnustaðaeftirlit
            • Vinnustaðaskírteini
            • Vinnustaðaeftirlit
            • Dagsektir
        • Laun og vinnutími
          • Laun
            • Launahugtakið
            • Lágmarkslaun
            • Dagvinna
            • Yfirvinna
            • Vaktavinna
            • Útkall
            • Afkastahvetjandi launakerfi
            • Heildarlaun - brúttólaun
            • Starfstengd hlunnindi
            • Ólaunuð vinna / “sjálfboðaliðastörf“
          • Greiðsla launa
            • Skuldajöfnuður
            • Launaseðill
            • Gjalddagi
          • Frádráttur frá launum
            • Skattar
            • Lífeyrissjóður
            • Iðgjöld til stéttarfélaga
            • Meðlög
          • Skekkjur í launaútreikningum
            • Vangreidd laun
            • Ofgreidd laun
          • Laun ekki greidd
            • Starfslok vegna verulegra vanefnda
            • Setuverkfall
            • Sjóveðréttur
          • Skráning vinnutíma
          • Vinna fellur niður
        • Orlof og frídagar
          • Ávinnsla orlofs
            • Lengd orlofs
          • Taka orlofs
            • Skattskil á orlofsgreiðslum
            • Útborgun orlofslauna
          • Orlofslaun
            • Útreikningur orlofslauna
            • Útreikningur orlofslauna hjá mánaðarkaupsmönnum
            • Orlofslaun lögð inn á orlofsreikning
            • Orlof innifalið í launum
          • Orlof - veikindi og slys
            • Veikindi í orlofi
            • Orlofsuppbót
            • Veikindi erlendis
            • Ýmis álitamál varðandi útreikning launa
          • Orlof og sóttkví
          • Aukafrídagar, aukahelgidagar
            • Aukafrídagar skv. lögum um 40 stunda vinnuviku
            • Aðrir frídagar
            • Ákvæði kjarasamninga um aukahelgidaga
            • Réttur til launa á aukafrídögum
            • Launagreiðslur fyrir unna aukafrídaga
          • Ýmsar reglur tengdar orlofi
            • Vanskil atvinnurekanda á orlofi
            • Orlof og uppsögn
            • Orlof og verkföll
            • Flutningur orlofslauna milli orlofsára
        • Veikindi
          • Lágmarksreglur
          • Veikindaréttur
            • Sjúkdómshugtakið
            • Greiðslur í veikindum
            • Tímalengd greiðslu
            • Talning veikindadaga
            • Brottfall veikindaréttar
            • Tengsl uppsagnar og veikindaréttar
            • Sök starfsmanns
              • Eigin sök og almennur veikindaréttur
              • Eigin sök og veikindaréttur vegna slysa
            • Tilkynningar um veikindi
            • Læknisvottorð
            • Læknisskoðanir
            • Trúnaðarlæknar
            • Fæðingarorlof og veikindi
            • Veikindi í orlofi
            • Er hægt að semja af sér veikindarétt
            • Veikindi barna
        • Vinnuslys og atvinnusjúkdómar
          • Vinnuslys
            • Almenn slys við vinnu
            • Skaðabótaskyld slys við vinnu
            • Slys á leið til eða frá vinnu
            • Slys utan vinnu
            • Tengsl uppsagnar og slysaréttar
          • Atvinnusjúkdómar
            • Almenn réttindi vegna atvinnusjúkdóma
            • Skaðabótaskyldir atvinnusjúkdómar
        • Aðbúnaður og hollustuhættir
          • Áhættumat og heilsuvernd á vinnustöðum
            • Öryggistrúnaðarmenn
            • Tilkynning vinnuslysa
          • Vinnu- og hvíldartímareglur
            • Vinnuumhverfi vaktavinnufólks 
            • Vinnutímareglur eru grundvallarréttindi
          • Vernd mæðra og þungaðra kvenna
          • Vinna barna og unglinga
          • Einelti og kynferðisleg áreitni
          • Eftirlitsheimildir VER
        • Persónuvernd launafólks
          • Vímuefnapróf
            • Getur hver sem er þurft að undirgangast vímuefnapróf
            • Réttmætar og málefnalegar ástæður atvinnurekanda
            • Hvernig skal framkvæma slíkar prófanir
            • Meðhöndlun upplýsinga og gagna sem verða til við vímuefnaprófun
            • Fyrir hvern eru niðurstöður vímuefnaprófs
            • Hvað ef niðurstaða prófsins leiðir í ljós vímuefnanotkun starfsmanns
            • Dómar
          • Rafræn vöktun
            • Hugtakið
            • Skilyrði og forsendur
            • Tegundir rafrænnar vöktunar
        • Jafnrétti á vinnumarkaði
          • Launajafnrétti
          • Bann við mismunun
        • Uppsögn ráðningarsambands
          • Uppsögn
            • Uppsagnarfrestur
            • Vinna á uppsagnarfresti
            • Framkvæmd uppsagna
            • Skaðabætur vegna uppsagna
          • Takmarkanir á uppsagnarrétti
            • Almennt bann við mismunun
            • Skoðanafrelsi launafólks
            • Trúnaðarmenn stéttarfélaga
            • Forgangsréttarákvæði kjarasamninga 
            • Jafnrétti
            • Starfsaldur
            • Fæðingar- og foreldraorlof 
            • Fjölskylduábyrgð starfsmanna 
            • Sérákvæði um fatlaða
            • Námssamningar
            • Aðilaskipti að fyrirtækjum 
            • Í veikindum og launalausu leyfi ?
          • Starfslok vegna brota
            • Réttarheimildir
            • Brot launamanns
            • Brot atvinnurekanda
          • Hópuppsagnir
            • Undanþágur
            • Upplýsingar og samráð
            • Tilkynning til svæðismiðlunar
            • 30 daga reglan
            • Kjarasamningar um hópuppsagnir
        • Riftun ráðningarsambands
          • Réttarheimildir
            • Kjarasamningar
            • Lög
          • Almenn skilyrði riftunar
            • Aðvörun
            • Tómlæti
          • Riftun atvinnurekanda
            • Almenn skilyrði
            • Aðvörun, áminning, tilkynning
            • Brotthlaup úr starfi
            • Brot á hlýðniskyldu 
            • Slæleg vinnubrögð
            • Vímuefnaneysla 
            • Brot á trúnaðarskyldu
            • Uppljóstrarar
            • Brot á öryggisreglum
            • Réttur til að halda eftir launum
            • Skaðabætur
          • Riftun launamanns
            • Gróft brot, réttur til að hverfa úr starfi
            • Aðvörun og tilkynning
            • Skaðabætur
        • Force majeure og slit ráðningar
        • Aðilaskipti að fyrirtækjum
          • Aðilaskipti
          • Fyrirtæki eða hluti fyrirtækis
          • Upplýsingar og samráð
          • Í ráðningarsambandi
          • Yfirfærsla réttinda
          • Uppsagnarvernd starfsmanna
          • Riftun ráðningarsamnings
        • Gjaldþrot atvinnurekanda
          • Ábyrgðarsjóður launa
          • Kröfur launamanna
          • Kröfur lífeyrissjóða
          • Ábyrgðartímabil
          • Undanþágur frá ábyrgð
          • Hámarksábyrgð á kröfum
          • Vextir og kostnaður
          • Ábyrgð án gjaldþrotaskipta
          • Orlof vegna greiðsluerfiðleika
          • Ýmis ákvæði
        • Atvinnuleysistryggingar
          • Hverjir eru tryggðir
          • Aldur umsækjanda
          • Búseta á Íslandi
          • Atvinnuleysi
          • Uppsögn án gildra ástæðna
          • Starfsmissir vegna eigin sakar
          • Vinnufærni
          • Virk atvinnuleit / Starfi hafnað
          • Útreikningur og upphæð atvinnuleysisbóta
          • Bótatímabil - 3 ár
      • Stéttarfélög og vinnudeilur
        • Stéttarfélög
          • Stutt sögulegt ágrip
          • Félagafrelsi
          • Skilgreining og skipulag
            • Félögin skulu opin öllum
            • Gerð kjarasamninga sé eitt af verkefnum félagsins
            • Stéttarfélög eru grunneiningar á vinnumarkaði
            • Félagssvæði
            • Skipulag stéttarfélaga
          • Almennt um hlutverk og skyldur
            • Ábyrgð stjórnarmanna
            • Aðgangur að gögnum
            • Trúnaðarmannaráð
            • Aðrir trúnaðarmenn og ábyrgðaraðilar
          • Aðild að stéttarfélagi
            • Skilyrði fyrir aðild
            • Félagsgjöld
            • Réttur til að standa utan stéttarfélags
            • Úrsögn úr stéttarfélagi
            • Brottrekstur úr stéttarfélagi
          • Réttindi og skyldur
            • Réttindi félagsmanna
            • Skyldur félagsmanna
            • Stéttarfélög og persónuvernd
          • Sjóðir stéttarfélaga
            • Félagssjóður
            • Vinnudeilusjóður
            • Sjúkrasjóður
            • Orlofssjóður
            • Lífeyrissjóður
            • Fræðslusjóður
            • Starfsendurhæfingarsjóður
        • Kjarasamningar
          • Aðild að kjarasamningi
          • Efni kjarasamninga
          • Forgangsréttarákvæði
          • Gildissvið kjarasamninga
            • Hverja bindur kjarasamningur
            • Starfsgreinar
            • Landfræðilegt gildissvið
          • Túlkun kjarasamninga
            • Túlkun samnings
            • Fylling
          • Gildistími
            • Uppsögn
          • Undirritun og atkvæðagreiðsla
          • Friðarskylda
            • Umfang
            • Friðarskylda og verkfallsheimild
            • Undantekningar
            • Ábyrgð vegna brottfalls friðarskyldu
            • Brottfall friðarskyldu
        • Ríkissáttasemjari
          • Hlutverk
          • Miðlunartillaga
        • Vinnustöðvanir
          • Hverjir geta efnt til vinnustöðvunar
          • Grundvöllur vinnustöðvunar
          • Verkföll
            • Hvað er verkfall
            • Árangurslausar viðræður og ákvarðanir
            • Atkvæðagreiðsla um verkfall
            • Tilkynning um verkfall
            • Verkfallsstjórn
            • Til hverra tekur verkfall
            • Verkfallsvarsla og verkfallsbrot
            • Lögbann á verkfallsvörslu
            • Afskipti lögreglu
            • Réttarstaða manna í verkfalli
            • Vinna annars staðar í verkfalli
            • Ábyrgð vegna verkfalls
            • Samúðarverkföll
            • Verkföll á opinberum vinnumarkaði
            • Verkfallsréttur og samþykktir ILO
          • Ákvörðun um verkbann
            • Hvað er verkbann
            • Framkvæmd verkbanns
            • Ábyrgð á samningsrofum í verkbanni
            • Verkbann hjá ríki og sveitarfélögum
        • Félagsdómur
          • Hlutverk
            • Brot á lögum 80/1938
            • Brot á kjarasamningi
            • Aðilar æskja dóms
            • Mörk iðnaðar
            • Opinberir starfsmenn
            • Bankamenn
          • Skipan dómsins
          • Dómaraskilyrði og hæfi
          • Málsmeðferð
          • Viðurlög
          • Staða Félagsdóms
        • Almennur og opinber vinnumarkaður-samanburður
          • Lagaumhverfi stéttarfélaga
            • Stéttarfélagsaðild
            • Samningsaðild
            • Verkföll
          • Réttindi launafólks
            • Lagaumhverfi
            • Ráðning í starf
            • Uppsagnarfrestur
            • Orlofsréttur
            • Veikindaréttur
            • Slysatryggingar launafólks
            • Fæðingar - og foreldraorlof
            • Fræðslusjóðir og starfsmenntamál
            • Lífeyrissjóðir
      • Trúnaðarmenn stéttarfélaga
        • Skilgreining hugtaksins trúnaðarmaður
        • Hlutverk trúnaðarmanna - fulltrúar stéttarfélaga og starfsmanna
          • Lögbundið samráð (sérstök lagaákvæði)
        • Val og tilkynning trúnaðarmanna
          • Kosning trúnaðarmanns
          • Tilkynning til atvinnurekanda um skipan trúnaðarmanns
        • Ráðningarvernd trúnaðarmanna
          • Tilefni uppsagna
            • Verkefnaskortur
            • Skipulagsbreytingar
            • Uppsögn vegna aldurs
            • Brot í starfi, óstundvísi, frammistaða,óheiðarleiki, trúnaðarbrestur
            • Ólögleg verkföll og óleyfileg fundarhöld
            • Réttur til þess að flytja trúnaðarmann milli deilda
          • Úrræði vegna uppsagna og brottreksturs
        • Menntun trúnaðarmanna
        • Öryggistrúnaðarmenn
      • Fæðingar- og foreldraorlof
        • Fæðingarorlof
          • Réttur til fæðingarorlofs
          • Lengd fæðingarorlofs
            • Lenging vegna veikinda barns
            • Lenging vegna veikinda móður
          • Tilkynning um töku fæðingarorlofs
          • Sveigjanleiki í orlofstöku
          • Greiðslur í fæðingarorlofi
            • Fæðingarstyrkur til foreldris utan vinnumarkaðar eða í minna en 25% starfi
            • Fæðingarstyrkur til foreldra í fullu námi
          • Umsókn um greiðslur í fæðingarorlofi
          • Sérreglur (fjölburafæðingar, andvanafæðing, veikindi o.fl. )
          • Vernd gegn uppsögnum
          • Uppsöfnun og vernd réttinda
          • Vinnuvernd mæðra og þungaðra kvenna
            • Mat á áhættuþáttum
            • Tímabundin breyting á vinnuskilyrðum o.fl.
            • Leyfi frá störfum
            • Tilvik þar sem vinna er bönnuð
            • Bann við vinnu og næturvinna
            • Réttur til mæðraskoðunar á launum
            • Brjóstagjöf
            • Veikindi á meðgöngu
            • Brot á reglum - skaðabætur og viðurlög
          • Ágreiningur
          • Umsóknareyðublöð og gagnlegir tenglar
        • Foreldraorlof
          • Réttur til foreldraorlofs
          • Tilhögun foreldraorlofs
          • Tilkynning og ákvörðun um töku foreldraorlofs
          • Vernd uppsafnaðra réttinda
          • Vernd gegn uppsögnum
          • Réttur til starfs
      • Evrópskur vinnuréttur
        • EES réttur og landsréttur
        • Vinnumarkaður
          • Hópuppsagnir - EES
          • Aðilaskipti að fyrirtækjum - EES
          • Gjaldþrot atvinnurekanda - EES
          • Upplýsingar um ráðningarkjör - EES
          • Evrópskt samstarfsráð - EES
          • Útsendir starfsmenn - EES
            • Innleiðing tilskipunar 96/71/EC
            • Dómar
          • Foreldraorlof - EES
          • Hlutastörf - EES
          • Tímabundnir ráðningarsamningar - EES
          • Upplýsingar og samráð
        • Jafnrétti kvenna og karla á vinnumarkaði – EES
          • Jöfn laun kvenna og karla - EES
          • Aðgangur að störfum - EES
          • Sönnunarbyrði í málum er varða mismunun vegna kynferðis - EES
          • Almannatryggingakerfi einstakra starfsgreina - EES
          • Öryggi þungaðra kvenna - EES
          • Foreldraorlof - EES
        • Vinnuvernd
          • Öryggisráðstafanir á vinnustöðum
          • Ákveðnir hópar starfsmanna
          • Vinnustaðir
          • Vinnu- og hvíldartími
        • Frjáls för launafólks
      • Alþjóðlegur vinnuréttur
        • Alþjóðavinnumálastofnunin - ILO
        • Samþykktir ILO
        • Alþjóðlegir mannréttindasáttmálar - staða Íslands
        • Due diligence – samfélagsleg ábyrgð
      • Icelandic labour law
        • Labour Market and Trade Unions
          • The Icelandic Confederation of Labour (ASI)
            • Federations affiliated to ASI
            • Unions directly affiliated to ASI
          • Trade Unions
            • Priority clauses
          • Workplace representation
          • Strikes
          • Political rights of workers
          • Union funds
          • Collective agreements
            • Content of collective agreements
            • Occupational and geographical coverage
            • Types of Collective agreements
            • Period of validity
            • Confidential ballots
            • Industrial peace
          • Access to the labour market
            • Non-discrimination
            • Age limits
            • Professional qualifications
            • Foreign workers
        • Contract of Employment and related rules
          • Written statement or contract of employment
          • Changes in terms
          • Termination of contract
          • Part-time workers
          • Fixed-term work
          • Young workers
            • Prohibited work
            • Working hours
        • Wages and working time
          • Working time
            • Day time and over time work
            • Shift work
          • Meal and Coffee breaks
          • Public holidays
            • Transfer of public holidays
            • Christmas and Holiday bonus
          • Pay statement (pay slip)
            • Particulars of a written pay statement
          • Taxes and contributions
        • Holidays and holiday allowance
          • Holiday allowance
            • Accrued holiday allowance
            • Holiday allowance account
            • Workers earning a monthly salary
            • Employment termination and holidays
          • Holiday period
            • Holiday outside the holiday period
            • Worker falls sick before or during holiday
        • Sickness and accidents
          • Additional rights under collective agreements
            • Trade unions belonging to SAMIDN
            • Trade unions belonging to SGS
            • Trade unions belonging to LIV
            • Trade unions belonging to RSI and MATVIS
          • Accruement of rights during absence
          • Transfer of acquired rights
          • Attending sick children and other compelling family reasons
          • Union Sickness Fund
          • Virk - Vocational Rehabilitation Fund
          • Accidents at work and occupational diseases
            • Medical expenses
            • Insurance for death, accident and disability
            • Statutory occupational injury insurance
            • Accountable employer
            • Reporting to the Administration of Occupational Safety and Health
        • Rest and maximum working time
          • Weekly working time
          • Daily rest
          • Weekly day off
          • Night workers
        • Termination of employment
          • Notice periods
            • Statutory rights
            • Rights under collective agreements
          • Employment protection
        • Gender equality
          • Pay equality
          • Equality programs
          • Work and family life
          • Sexual harassment
          • Complaints and damages
        • Maternity and paternal rights
          • Maternity/paternity leave
          • Maternity/paternal benefits
          • Safety and health of pregnant women
          • Parental leave – unpaid
          • Employment protection
        • Pension funds
          • Mandatory occupational pension fund
          • Supplementary Pension
          • Statutory pension
        • Protection of personal data
          • Personal data
          • Data Processing
          • Electronic surveillance
          • E-mail and internet use
        • Health and safety
        • Transfer of undertakings
        • Foreign workers
          • Workers from Europe
            • Posted workers
            • Temporary agency workers
          • Workers from third countries - Work permits
            • Temporary work permits
            • Permanent work permits
            • Specialist work permit
            • Four weeks exemption
          • Agreement on foreign workers
        • Icelandic Collective labour law (summary)
          • Basic legislation
            • The private sector
            • The public sector
          • The negotiating parties
            • The unions
            • The employers
          • Collective bargaining
            • Schedule of negotiations
            • The process
            • Agreement is reached - voting
            • Compromise proposal
            • Industrial peace
          • Strikes and lockouts (work stoppages)
            • The public sector
          • Priority clauses
          • Deduction of union fees
  • Fréttir og útgáfa
    • Fréttir
      • Almennar fréttir
      • Fréttir af kjarasamningum
      • Verðlagsfréttir
      • COVID 19 - Upplýsingar fyrir launafólk
      • Kófið og hrunið: lærdómur og leiðin fram á við 
    • Útgáfa
      • Skýrslur og bæklingar
      • Mánaðaryfirlit stefnumótunar og greiningar
      • Vinnan (vefrit)
      • Merki
    • Miðlun
      • Sjónvarp ASÍ
      • Hlaðvarp
      • Streymi
    • Samstarfsverkefni
      • Bjarg íbúðafélag
      • Einn réttur – ekkert svindl!
      • Volunteering in Iceland
    • 9. þing ASÍ-UNG / Stefna ASÍ-UNG
      • Viðburðir
  • Um ASÍ
    • Hlutverk og saga
      • Hvað er ASÍ?
      • Stefna
        • Kjarasamningar
          • Kjarasamningar 2019
          • Kjarasamningar 2016
          • Kjarasamningar 2015
          • Kjarasamningar 2013
          • Kjarasamningar 2011
          • Kjarasamningar 2008
        • Samfélagssáttmáli um félagslegan stöðugleika
        • Alþjóðamál
        • Atvinnumál
        • Húsnæðismál
        • Jafnréttis- og fjölskyldumál
        • Lífeyrismál
          • Samningar um lífeyrismál
          • Stefnumótun ASÍ í lífeyrismálum
          • Fjárhagur lífeyrissjóðanna
          • Greinar og gagnlegt efni um lífeyrismál
          • Gagnlegir tenglar
          • Önnur umfjöllun um lífeyrismál á vettvangi ASÍ
        • Menntamál
        • Skattamál
        • Umhverfismál
        • Velferðarmál
        • Stefna ASÍ í vinnuverndarmálum
        • Rétta leiðin - frá kreppu til lífsgæða
      • Verðlagseftirlit ASÍ
      • Umsagnir um þingmál
      • Listasafn ASÍ
      • Saga ASÍ
      • Persónuverndaryfirlýsing ASÍ
    • Skipulag
      • Aðildarfélög
        • Starfsgreinasamband Íslands
        • Landssamband íslenzkra verzlunarmanna
        • Samiðn
        • Rafiðnaðarsamband Íslands
        • Sjómannasamband Íslands
        • Félög með beina aðild að ASÍ
      • Þing
      • Miðstjórn
        • Starfsnefndir miðstjórnar
        • Ályktanir miðstjórnar ASÍ
        • Fulltrúar ASÍ í nefndum og ráðum
      • Forseti
        • Fyrri forsetar
        • Eldri ræður
      • Skrifstofa
      • Lög ASÍ, reglugerðir og reglur
        • Lög ASÍ
        • Reglugerðir og reglur
          • Þingsköp ASÍ
            • 1. Upphaf þings – Afgreiðsla kjörbréfa 
            • 2. Stjórn þingsins
            • 3. Nefndir
            • 4. Umræður
            • 5. Tillögur, lagabreytingar og atkvæðagreiðsla
            • 6. Kosningar
            • 7. Afgreiðsla og breyting þingskapa
            • Atriðisorðaskrá
          • Viðmiðunarreglur um réttindi og skyldur stjórnarmanna í aðildarsamtökum ASÍ
            • 1. Inngangur
            • 2. Réttindi og skyldur stjórnarmanna
            • 3. Um framkvæmdastjóra og starfsmenn 
            • 4. Siðareglur, þagnarskylda og persónuvernd
            • 5. Sjóðir og hlutverk þeirra
            • 6. Bókhald og reikningsskil
          • Reglugerð um bókhald og ársreikninga aðildarsamtaka ASÍ
            • I. Kafli – Bókhald og áætlanagerð
            • II. Kafli – Ársreikningur, endurskoðun og aðrar fjárhagslegar upplýsingar
          • Reglugerð um leynilega allsherjar atkvæðagreiðslu meðal félagsmanna aðildarsamtaka ASÍ
            • I. Kafli – Hvenær er skylt að viðhafa allsherjaratkvæðagreiðslu
            • II. Kafli – Form og framkvæmd allsherjaratkvæðagreiðslu
            • III. Kafli – Almenn allsherjaratkvæðagreiðsla um kjarasamning og boðun vinnustöðvunar
            • IV. Kafli – Önnur ákvæði
          • Kosningar á félagsfundum
          • Viðmiðunarreglugerð fyrir sjúkrasjóði aðildarfélaga ASÍ
          • Starfsreglur vegna afgreiðslu á reglugerðum sjúkrasjóða og um mat á framtíðarstöðu 
            • I. Kafli – Skil á reglugerðum og reglugerðarbreytingum
            • II. Kafli – Skil á mati á framtíðarstöðu
          • Starfsreglur vegna umsagna Laganefndar ASÍ
          • Reglur um boðun varamanna á fundi miðstjórnar ASÍ
          • Reglugerð fyrir starfsemi skrifstofu ASÍ
          • Reglugerð um greiðslu ferðakostnaðar þingfulltrúa og vegna formannafunda
          • Skipulagsskrá fyrir minningarsjóð Eðvarðs Sigurðssonar
          • Reglugerð fyrir Listasafn ASÍ
          • Verklag við rafrænar atkvæðagreiðslur
          • Reglur um greiðslur úr Vinnudeilusjóði ASÍ
      • ASÍ-UNG
    • Starfsfólk
      • Starfsfólk
        • Forsetar
        • Rekstrar- og þjónustusvið
        • Hagfræði- og greiningarsvið
        • Lögfræði- og vinnumarkaðssvið
        • Fræðslusvið
    • Fræðsla
      • Félagsmálaskóli alþýðu
      • Skólakynningar
      • Minningarsjóður Eðvarðs Sigurðssonar
    • Samstarf
      • Norðurlönd
      • Evrópa
      • Alþjóðlegt samstarf
  1. Forsíða
  2. Fréttir og útgáfa
  3. Fréttir
  4. Verðlagsfréttir
  5. Munur á stýrivöxtum og vöxtum af húsnæðislánum aukist
  • Fréttir
    • Almennar fréttir
    • Fréttir af kjarasamningum
    • Verðlagsfréttir
    • COVID 19 - Upplýsingar fyrir launafólk
    • Kófið og hrunið
  • Útgáfa
    • Skýrslur og bæklingar
    • Mánaðaryfirlit
    • Vinnan (vefrit)
    • Merki
  • Miðlun
    • Sjónvarp ASÍ
    • Hlaðvarp
    • Streymi
  • Samstarfsverkefni
    • Bjarg íbúðafélag
    • Einn réttur – ekkert svindl!
    • Volunteering in Iceland
  • Viðburðadagatal
    • Viðburðir

Munur á stýrivöxtum og vöxtum af húsnæðislánum aukist

10. júní 2020

Auður Alfa Ólafsdóttir
auduralfa@asi.is

Share article on Facebook Share article on Twitter
Verðlagseftirlit ASÍ icon

Verðlagseftirlit ASÍ á Facebook

Facebook-síðan

Fylgstu með Verðlagseftirliti ASÍ á Facebook.

Facebook-hópurinn

Vertu á verði – Facebook-hópur. Taktu þátt í eftirliti með verðlagi.

Picture 041

Úttekt verðlagseftirlits ASÍ á vaxtaþróun sýnir að húsnæðisvextir lánastofnana hafa lækkað mikið síðasta eitt og hálfa árið eða á tímabilinu 1. janúar 2019 til 7. júní 2020. Viðskiptabankarnir hafa í sumum tilfellum tekið fram úr lífeyrissjóðunum og bjóða stundum upp á betri vaxtakjör en lífeyrissjóðirnir sem er öfugt við það sem áður var þegar lífeyrissjóðirnir voru með mun betri vaxtakjör en bankarnir.

Á tímabilinu hafa stýrivextir lækkað um 3,5 prósentustig, úr 4,5% í 1% og hafa þeir aldrei verið lægri. Í samanburði hafa verðtryggðir breytilegir húsnæðisvextir af grunnlánum lækkað um 0,4-1,55 prósentustig og óverðtryggðir breytilegir vextir af grunnlánum um 0,95-3,5 prósentustig. Óverðtryggðir fastir vextir til 3-5 ára hafa í mörgum tilfellum lækkað mikið eða á bilinu 1,55-3,35 prósentustig en verðtryggðir fastir vextir út lánstímann minna, um 0,05-0,4 prósentustig og verðtryggðir fastir vextir til 3-5 ára um 1,25-1,45 prósentustig.

Óverðtryggðir vextir hafa almennt lækkað meira en verðtryggðir og er minni munur á óverðtryggðum vöxtum og verðtryggðum í dag en fyrir einu og hálfu ári en á sama tíma hefur dregið úr verðbólgu. Þrátt fyrir miklar vaxtalækkanir hefur munur á stýrivöxtum og óverðtryggðum vöxtum af húsnæðislánum í mörgum tilfellum aukist á tímabilinu og því hafa lántakendur húsnæðislána að jafnaði ekki notið góðs af lækkun stýrivaxta að fullu.

ATH! Flettilisti efst í mynd.

Lágir vextir skipta heilmiklu máli og geta lækkað útgjöld heimila verulega. Sem dæmi má taka að lán sem ber 0,5 prósentustigum hærri vexti en annað sambærilegt lán, hefur í för með sér auka kostnað upp á 150.000 á ári fyrir lántakanda með 30 milljón króna lán. Ef munurinn á vöxtum er enn meiri, t.d. 1,5 eða 2 prósentustig er það auka kostnaður upp á  450.000-600.000 krónur á ári. Að sama skapi skiptir máli hversu hratt lánastofnanir lækka vexti og bregðast við stýrivaxtalækkun en 0,3 prósentustiga vaxtalækkun samsvarar t.d. 833 kr. á hálfum mánuði og 1.667  kr. á heilum mánuði miðað við 20 milljón króna lán. Ef lánastofnanir bregðast síendurtekið seint við stýrivaxtalækkun og lækka vexti sína seint getur það safnast upp í töluverðar fjárhæðir og geta lánastofnanir með þúsundir viðskiptavina grætt háár fjárhæðir með því. Lánastofnun sem er með 20 þúsund lántakendur með 20 milljón króna lán sparar 75 milljónir á að lækka vexti hálfum mánuði seinna.

Nauðsynlegt er að hafa í huga að vextir af viðbótarlánum geta breytt heildarmyndinni á þann hátt að þrátt fyrir að ein lánastofnun sé með lægri vexti af grunnlánum en önnur geta heildarvaxtakjörin verið verri þegar viðbótarlán er tekið með. Viðbótarlán eru þau lán sem eru tekin ef veðhlutfall fer yfir 60-75% (hámarks veðhlutfall grunnlána er misjafnt eftir lánastofnunum). Breytingar á vöxtum á viðbótarlánum má sjá í stöplaritunum sem fylgja með fréttinni. Við samanburðinn ber einnig að hafa í huga að hámarks veðsetning af grunnlánum er mishá hjá lánastofnunum og að misströng skilyrði eru fyrir lántöku hjá lánastofnununum. Skilyrði fyrir lánum má sjá í þessari töflu.

Munur á óverðtryggðum breytilegum vöxtum og stýrivöxtum aukist um 1-1,5 prósentustig
Í flestum tilfellum hefur munur á stýrivöxtum og óverðtryggðum vöxtum aukist hjá viðskiptabönkum og lífeyrissjóðum nema í tilfelli Birtu þar sem munur á stýrivöxtum og óverðtryggðum breytilegum vöxtum sjóðsins hefur haldist 1,1 prósentustig allt tímabilið. Óverðtryggðir breytilegir vextir sjóðsins hafa því lækkað jafn mikið og stýrivextir, um 3,5 prósentustig úr 5,6% í 2,10%. Svipað á við í tilfelli Íslandsbanka þar sem munur á óverðtryggðum föstum vöxtum bankans og stýrivöxtum hefur haldist um 3 prósentustig en bankinn var einnig með hæstu vextina í byrjun tímabils.

Sem dæmi um aukinn vaxtamun má nefna að í byrjun tímabils var 1,5 prósentustiga munur á stýrivöxtum og óverðtryggðum breytilegum vöxtum Landsbankans og Íslandsbanka en í dag er munurinn kominn upp í 2,5 prósentustig hjá Landsbankanum og 2,7% hjá Íslandsbanka. Í byrjun tímabils var 2,1 prósentustiga munur á stýrivöxtum og óverðtryggðum breytilegum vöxtum hjá Arion banka en er í dag 2,54 prósentustig. Sömu sögu er að segja um lífeyrissjóðina en sem dæmi hefur munur á óverðtryggðum breytilegum vöxtum Brúar lífeyrissjóðs og á stýrivöxtum farið úr 2 prósentustigum upp í 3,2 prósentustig og úr 1,8 prósentustigum upp í 3,25 hjá Lífsverk.

Mesta lækkunin á óverðtryggðum breytilegum vöxtum á grunnlánum hjá Arion banka og Birtu en lægstu vextirnir nú hjá Landsbankanum og Birtu
Stýrivaxtalækkun hefur skilað sér betur í lækkun óverðtryggðra breytilegra vaxta á grunnlánum hjá viðskiptabönkunum en lífeyrissjóðunum og bjóða þeir upp á lægri óverðtryggða vexti í dag en lífeyrissjóðirnir, ef Birta er undanskilinn. Mest hafa óverðtryggðir breytilegir vextir af grunnlánum lækkað hjá Birtu lífeyrissjóði, um 3,5 prósentustig og eru þeir þeir lægstu á markaðnum, 2,10%. Næst mest hafa þeir lækkað hjá Arion banka um 3,06 prósentustig en Landsbankinn býður þó  ennþá upp á örlítið lægri vexti, 3,50% samanborið við 3,54% hjá Arion banka. Minnst hafa vextirnir lækkað hjá Gildi um 0,95 prósentustig sem gerir þá að þriðju hæstu óverðtryggðu breytilegu vöxtunum, 4,55%. Hæstu óverðtryggðu breytilegu vextirnir eru hjá LSR, 5,10%.

ATH! Flettilisti efst í mynd.


Íslandsbanki lækkað óverðtryggða fasta vexti mest og er með lægstu vextina
Stýrivaxtalækkun hefur skilað sér betur í lækkun á óverðtryggðum föstum vöxtum á grunnlánum hjá bönkunum en lífeyrissjóðunum og bjóða þeir í dag upp á lægri vexti en lífeyrissjóðirnir en því var öfugt farið í byrjun tímabilsins. Íslandsbanki hefur lækkað óverðtryggða fasta vexti til þriggja ára lang mest, um 2,95 prósentustig en næst mest lækka þeir hjá Landsbankanum um 2,3 prósentustig. Íslandsbanki er með lægstu óverðtryggðu föstu vextina til þriggja ára, 3,95% en næst lægstir eru þeir hjá Landsbankanum, 4,2%. Af þeim þremur lífeyrissjóðum sem bjóða upp á óverðtryggða fasta vexti hefur Lífeyrissjóður Verzlunarmanna lækkað sína vexti mest, um 1,87 prósentustig. Frjálsi lífeyrissjóðurinn og Almenni lífeyrissjóðurinn bjóða samt sem áður upp á lægri vexti, 4,6% í tilfelli Frjálsa og 4,75% í tilfelli Almenna í samanburði við 4,95% hjá LV.

Óverðtryggðir fastir vextir til fimm ára eru einungis í boði hjá viðskiptabönkunum þremur en þeir hafa lækkað mest hjá Íslandsbanka um 3,35 prósentustig. Vextirnir hjá Íslandsbanka eru þar að auki lægstir, 4,05% en næst lægstir eru vextirnir hjá Landsbankanum, 4,4%.


Festa og Landsbankinn með lægstu verðtryggðu breytilegu vextina en Íslandsbanki og Arion banki þá hæstu
Verðtryggðir breytilegir vextir á grunnlánum hafa í mörgum tilfellum lækkað mikið á tímabilinu en þó minna en óverðtryggðir breytilegir vextir en verðtryggðir vextir voru lægri fyrir. Verðtryggðir breytilegir vextir hafa í flestum tilfellum lækkað meira hjá viðskiptabönkunum en lífeyrissjóðunum en bankarnir voru með töluvert hærri vexti í byrjun tímabils.

Mest hafa verðtryggðir breytilegir vextir af lánum fyrir nýja lántakendur lækkað hjá Landsbankanum, um 1,55 prósentustig og standa vextir bankans í 2,0% sem eru lægstu vextirnir hjá viðskiptabönkunum en sjöttu hæstu vextirnir sem standa til boða. Næst mest hafa vextirnir lækkað hjá Lífsverki, um 1,35 prósentustig og er það mesta lækkunin af lífeyrissjóðunum. Lífsverk er þó með fimmtu hæstu verðtryggðu breytilegu vextina í dag af öllum lánastofnunum, 2,15%. Á eftir Landsbankanum hefur Festa lífeyrissjóður lækkað sína vexti mest, um 1,18 prósentustig og er með lægstu verðtryggðu breytilegu vextina sem standa nýjum lántakendum til boða í dag. Íslandsbanki og Arionbanki eru með hæstu verðtryggðu breytilegu vextina af öllum lánastofnunum, 2,74% hjá Arion banka og 2,85% hjá Íslandsbanka.

ATH! Flettilisti efst í mynd.


Lægstu föstu verðtryggðu vextirnir til 3-5 ára hjá Almenna lífeyrissjóðnum og Íslandsbanka en lægstu föstu verðtryggðu vextirnir út lánstímann hjá LV
Fastir verðtryggðir vextir út lánstímann hafa lækkað lítið á tímabilinu en þeir standa aðeins til boða hjá lífeyrissjóðunum en ekki viðskiptabönkunum. Mest hafa þeir lækkað hjá Lífeyrissjóði verzlunarmanna um 0,4 prósentustig og næst mest hjá Stapa lífeyrissjóði um 0,3 prósentustig. Það skilar sér í því að verðtryggðir fastir vextir út lánstímann eru þeir lægstu hjá LV, 3,20% og þeir næst lægstu hjá Stapa, 3,30%. Sömu vextir stóðu hins vegar í stað hjá Birtu, Almenna lífeyrissjóðnum, Söfnunarsjóði lífeyrisréttinda og HMS. Hæstu verðtryggðu föstu vextirnir út lánstímann eru hjá Birtu 3,6% og Almenna lífeyrissjóðnum 3,6%.

Ef litið er til verðtryggðra fastra vaxta til fimm ára hefur mesta lækkunin á tímabilinu átt sér stað hjá Íslandsbanka sem hefur lækkað vextina um 1,45 prósentustig en næst mesta lækkunin er hjá Arion banka og nemur hún 1,43 prósentustigum. Lægstu vextirnir eru hjá Íslandsbanka, 2,3% en þeir næst lægstu hjá Lansbankanum 2,4%. Einungis Almenni lífeyrissjóðurinn býður upp á fasta verðtryggða vexti til þriggja ára og eru þeir 2,0%.


Um úttektina
Úttektin sýnir þróun á húsnæðisvöxtum af grunnlánum yfir tímabilið 1.1 2019- 7.6 2020. Breytingar á vöxtum á viðbótarlánum má sjá í stöplaritunum sem fylgja með fréttinni. Stöplaritin sýna einnig gömul lán sem eru ekki í boði fyrir nýja lántakendur en eru til samanburðar fyrir þá sem eru með slík lán. Hámarks veðsetning grunnlána er misjöfn eftir lánastofnunum en er á bilinu 60-75%. Misjöfn skilyrði eru fyrir lántöku hjá lánastofnunum en skilyrðin má sjá hér. Nánari upplýsingar um lánareglur má finna á vefsíðum lánastofnananna.

Úttektin nær til 15 lánastofnana, viðskiptabanka og lífeyrissjóða sem eru;  Landsbankinn, Íslandsbankinn og Arion banki og Almenni lífeyrissjóðurinn, Birta, Brú, Festa, Frjálsi lífeyrissjóðurinn, Gildi, Lífsverk, LSR, Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda, Stapi, Lífeyrissjóður Verzlunarmanna og Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Vextir eru birtir hjá þeim aðilum sem voru búnir að breyta vöxtum sínum eða gefa út breytingar á vöxtum sínum þann 7.6 2020. Í einhverjum tilfellum eiga breytingar á vöxtum því eftir að taka gildi.

Tengill á forsíðu ASÍ

Alþýðusamband Íslands er stærsta fjöldahreyfing launafólks á landinu. ASÍ er samband 47 stéttarfélaga á almennum vinnumarkaði.

Alþýðusamband Íslands
Guðrúnartúni 1 • 105 Reykjavík
kt. 420169–6209

  • 53 55 600
  • asi@asi.is
  • Facebook-síða ASÍ
  • YouTube-rás ASÍ

VINNURÉTTUR

  • Um vinnuréttarvefinn
  • Vinnuréttur

FRÉTTIR OG ÚTGÁFA

  • Fréttir
  • Útgáfa
  • Samstarfsverkefni
  • Hlaðvarp
  • Sjónvarp ASÍ

UM ASÍ

  • Hvað er ASÍ?
  • Þing
  • Forseti
  • Starfsfólk

Vafrakökur

Við notum vafrakökur til að bæta vefinn. Fyrir frekari upplýsingar getur þú skoðað skilmála um meðferð persónuupplýsinga á vefnum.

Notkunarskilmálar um persónuvernd

Veldu leið til að hafa samband við ASÍ

Tölvupóstur Algengar spurningar