Fastanefndir ASÍ og skipun þeirra
Minnisblað
Samþykkt miðstjórnar ASÍ frá 6. desember 2000, með síðari breytingum.
Nefndirnar undirbúa stefnumótun og ákvarðanatöku á vettvangi miðstjórnar ASÍ og þinga sambandsins og fylgja eftir samþykktum miðstjórnar og þinga.
Málefnanefndir:
Alþjóðanefnd
Viðfangsefni: Norrænt samstarf, samstarf á Evrópuvísu, alþjóðasamstarf, þ.m.t. ILO.
Atvinnumálanefnd
Viðfangsefni: Stefnumótun og starf að atvinnumálum almennt og stefnumótun í byggðamálum sérstaklega.
Efnahags- og skattanefnd
Viðfangsefni: Umfjöllun um efnahags- og skattamálin, bæði almennt og sérstaklega í tengslum við eftirfylgni með markmiðum kjarasamninga.
Jafnréttis- og fjölskyldunefnd
Viðfangsefni: Stefnumótun og starf að jafnréttis- og fjölskyldumálum. Málefni útlendinga.
Lífeyris- og veikindaréttarnefnd
Viðfangsefni: Móta stefnu og áherslur ASÍ í lífeyrismálum almennt. Móta afstöðu ASÍ til viðræðna við stjórnvöld um samþættingu lífeyriskerfis og almannatrygginga með sérstakri áherslu á eftirlaun og áfallatryggingar.
Menntanefnd
Viðfangsefni: Stefnumótun og starf að menntamálum almennt.
Skipulags- og starfsháttanefnd
Viðfangsefni: Skipulag- og starfshættir ASÍ. Fylgja eftir lögum ASÍ og móta starfsreglur og framkvæmd vegna þeirra. Vettvangur umfjöllunar um gerð og þróun samstarfssamningsins.
Umhverfisnefnd
Viðfangsefni: Stefnumótun og starf að umhverfis- og loftslagsmálum almennt og með sérstöku tilliti til þróunar atvinnumála, auðlindanýtingar og atvinnuuppbyggingar.
Velferðarnefnd
Viðfangsefni: Stefnumótun og starf að heilbrigðis- og tryggingamálum, húsnæðismál o.fl.
Vinnumarkaðsnefnd
Viðfangsefni: Frumkvæði og eftirlit með setningu laga og reglna á sviði vinnuréttar þ.m.t. vinnuverndar, vinnulöggjöfin og leikreglur á vinnumarkaði.
Skipun í nefndir:
Miðstjórn skipar einn mann í hverja nefnd.
Einn nefndarmaður er skipaður af hverju landssambanda innan ASÍ.
Einn nefndarmaður er skipaður af landsfélögum með beina aðild, sameiginlega.
Miðstjórn skipar hverri nefnd minnst einn starfsmann, en auk þess hafa nefndir aðgang að fleiri starfsmönnum eftir því sem þörf krefur og aðstæður leyfa hverju sinni.
Erindisbréf og starfsreglur
Nefndunum eru sett erindisbréf og starfsreglur sem samþykktar eru af miðstjórn.
Starfsnefndir sem miðstjórn skipar:
Laganefnd
Nefndin undirbýr umsagnir miðstjórnar vegna laga aðildarfélaganna og reglugerðir sjúkrasjóða.
Nefndin starfar í nánu samstarfi við skipulags- og starfsháttanefnd og skal að jafnaði skipuð 3 miðstjórnarmönnum sem jafnframt eigi sæti í skipulags- og starfsháttanefnd.
Skipaður starfsmaður nefndarinnar er lögmaður ASÍ.
Launanefnd miðstjórnar ASÍ
Nefndin tekur ákvarðanir um launakjör forseta og framkvæmdastjóra ASÍ í umboði miðstjórnar ASÍ.
Nefndina skipa þrír miðstjórnarmenn.
Starfs- og fjárhagsnefnd
Í framhaldi af samþykkt ársfundar ASÍ 2003 skipaði miðstjórn starfs- og fjárhagsnefnd. Starfs- og fjárhagsnefnd skipa þrír miðstjórnarmenn. Verkefni nefndarinnar er að starfa með forsetum ASÍ og framkvæmdastjóra við undirbúning að gerð og kynningu á starfs- og fjárhagsáætlun sambandsins fyrir næstkomandi ár.
Mælir breytingu á verði vörukörfu með fjölmörgum...