Alþjóðasamband verkalýðsfélaga, ITUC, eru samtök heildarsamtaka launafólks og svæðasambanda sem starfa um allan heim. ITUC er í dag einu viðurkenndu heildarsamtök launafólks á heimsvísu.
ITUC var stofnað 1. nóvember 2006 með sameiningu tveggja alþjóðasamtaka launafólks, Alþjóðasambands frjálsra verkalýðsfélaga (ICFTU) og Heimssamtaka verkafólks (WCL), auk nokkurra svæðisbundinna samtaka sem stóðu utan heildarsamtakanna.
1. nóvember áttu 168 milljónir launafólks í 304 aðildarsamtökum í 153 löndum og landssvæðum aðild að ITUC. ITUC starfar um allan heim. Í Evrópu á ITUC náið samstarf við ETUC, sem hefur innan sinna raða öll aðildarsamtök ITUC í Evrópu. Þá á ITUC náið samstarf við alþjóðasambönd einstakra starfs- og atvinnugreinanna.
Starf ITUC beinst einkum að því að bæta stöðu og auka réttindi verkafólks í þróunarríkjunum, auk þess að styðja almenna mannréttindabaráttu. Sem dæmi um málefni sem ICFTU starfar að má nefna:
Að réttindi samtaka launafólks og lágmarksréttindi verkafólks séu viðurkennd og virt.
ITUC á náðið samstarf við Alþjóðavinnumálastofnunina, ILO. Þá gegna samtökin ráðgjafarhlutverki gagnvart Efnahags- og félagsmálaráði Sameinuðu þjóðanna, og einstaka stofnana þeirra eins og UNESCO og FAO. ITUC á einnig samskipti við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn (IMF), Alþjóðabankann og Alþjóðaviðskiptastofnunina (WTO).
ASÍ á aðild að ITUC. Í framkvæmd er þátttaka ASÍ á starfi ITUC einkum í gegnum aðildina að Norræna verkalýðssambandinu (NFS) og Evrópusambandi verkalýðsfélaga (ETUC).
Smella hér til að sjá ávarp ITUC á 1.maí 2007
Smelltu hér til að fara á heimasíðu ITUC
er einfaldlega launahækkanir að frádreginni verðbólgu...