Alþjóðavæðingin með auknum viðskiptum og samskiptum þjóða á öllum sviðum felur í sér að þekking og þátttaka í alþjóðastarfi verður stöðugt mikilvægari fyrir verkalýðshreyfinguna á alþjóðavettvangi og í þjóðríkjunum. Þá hefur alþjóðavæðingin aukið skilning á mikilvægi stuðnings samtaka launafólks við verkalýðshreyfingu og alla alþýðu í þróunarríkjunum.
Alþjóðasamband verkalýðsfélaga, ITUC eru alþjóðasamtök launafólks sem stofnuð voru í byrjun nóvember 2006 með sameiningu tveggja alþjóðsambanda og svæðasambanda launafólks sem staðið höfðu utan alþjóðasamtakanna. ITUC nýtur almennrar og víðtækrar viðurkenningar í alþjóðasamfélaginu sem fulltrúi launafólks á alþjóðavettvangi. Megin verkefni samtakanna er að samræma afstöðu aðildarsamtakanna og koma fram fyrir þeirra hönd á alþjóðavísu og í ýmsum alþjóðastofnunum. Þunginn í starfi ITUC beinist að baráttunni fyrir alþjóðlegri viðurkenningu á réttindum launafólks til að stofna og starfa í verkalýðsfélög og rétt þeirra til að gera kjarasamninga. Þá berjast þau fyrir grundvallarréttindum launafólks í starfi og almennum mannréttindum. Eðli málsins samkvæmt beinist starf ITUC að því að styðja verkalýðshreyfinguna og mannréttindabaráttu í þróunarríkjunum, innan alþjóðastofnana og í einstaka þróunarríkjum
Alþjóðavinnumálastofnunin, ILO, er ein af stofnunum Sameinuðu þjóðanna. ILO er vettvangur fyrir þríhliðasamstarf ríkisstjórna og samtaka launafólks og atvinnurekenda á alþjóðavettvangi og í aðildarríkjunum. Starf ILO beinist einkum að grundvallarréttindum samtaka á vinnumarkaði og launafólks í starfi. ILO hefur samþykkt mikinn fjölda samþykkta á framangreindum sviðum, auk þess að standa fyrir öflugu rannsóknastarfi á sviði vinnumarkaðsmála og sinna margháttuðu aðhalds-, og leiðbeiningar- og þróunarhlutverki. ASÍ hefur á undanförnum árum eflt til muna starf sitt á vettvangi ILO.
Ráðgjafarnefnd Efnahags- og framfarastofnunar Evrópu (OECD), TUAC, er vettvangur heildarsamtaka launafólks í 30 aðildarríkjum OECD. TUAC gegnir víðtæku ráðgjafarhlutverki um málefni er varða efnahags-, atvinnu- og félagsmál gagnvart OECD og iðnríkjunum 8, G8. TUAC hefur sterk tengsl við ETUC og ICFTU og fulltrúa verkalýðshreyfingarinnar innan ILO.
Á ársfundi ASÍ 2002 var undirritaður rammasamningur á milli Alþýðusambandsins og Þróunarsamvinnustofnunar Íslands, ÞSSÍ, um samstarf þessara aðila að málefnum og stuðningi við þróunarríki. Samningurinn felur í sér að Alþýðusambandið mun koma að ýmsum verkefnum sem leidd eru af ÞSSÍ með fjárframlögum og/eða vinnuframlagi. Lögð er áhersla á að sú þekking og reynsla sem byggst hefur upp hjá ASÍ og stofnunum þess nýtist sem best í þessu starfi. Þetta á m.a. við um stuðning við uppbyggingu á símenntun í þróunarríkjunum.
er samkvæmt lögum 13 vikna frí sem foreldrar...