Á ársfundi Alþýðusambandsins 1. nóvember 2002 var undirritaður samstarfssamningur á milli ASÍ og Þróunarsamvinnustofnunar Íslands, ÞSSÍ, um þróunarsamvinnu.
Samkvæmt samningnum tekur ASÍ að sér að kosta tiltekin, afmörkuð þróunarverkefni, sem samkomulag verður um milli samningsaðila hverju sinni. Verkefnin skulu einkum vera á sviði fullorðinsfræðslu, öryggis- og aðbúnaðarmál og vinnuverndar alþýðufólks í löndum þar sem ÞSSÍ hefur starfsemi. Verkefnin geta einnig verið tímabundin sérverkefni á öðrum sviðum, t.d. matvæla- og lyfjaaðstoð á tilteknu svæðum. Með kostun er einnig átt við ráðgjöf og þjónustu ráðgjafa á þeim sviðum, sem samkomulagið nær til.
ÞSSÍ tekur að sér að framkvæma þau verkefni, sem um er samið hverju sinni með þeim hætti, sem samið verður um. ÞSSÍ skal skila ASÍ árlegu uppgjöri um ráðstöfun þeirra fjármuna, sem ASÍ ráðstafar til verkefnanna á ári hverju og skal gera grein fyrir framgangi verkefnanna samhliða ársskýrslu ÞSSÍ.
Markmið ASÍ með samningi þessum er að leggja lið verkefnum á sviði fullorðinsfræðslu, öryggismála og vinnuverndar alþýðufólks í samstarfslöndum ÞSSÍ í þeim tilgangi að vinna gegn fátækt og bæta lífsskilyrði og afkomu. ASÍ mun í þeim efnum sérstaklega styðjast við þá miklu reynslu og þekkingu, sem samtökin hafa yfir að búa á þeim sviðum, sem samstarfssamningur þessi tekur til. Markmið ASÍ er að ráðstafa allt að 0,7% af árlegum skatttekjum sambandsins í þróunaraðstoð. ASÍ mun ákveða endanlega þá fjárhæð sem varið verður til þeirra verkefna, sem samningur þessi nær til, fyrir lok desember ár hvert.
Í framhaldi af samstarfssamningnum hafa ASÍ og ÞSSÍ gert tvo viðbótarsamninga: Í desember 2002 í samstarfi við landssamböndin innan ASÍ um neyðaraðstoð í Malaví vegna kólerufaraldurs. Í júní 2003 um verkefni í fullorðinsfræðslu í umsjá ÞSSÍ í Kalangala-héraði í Úganda.
Gildistími samstarfssamningsins er til ársloka 2005 og endurnýjast hann sjálfkrafa til næstu þriggja ára sé honum ekki sagt upp.
Smelltu hér til að fara á heimasíðu Þróunasamvinnustofnunar