Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
Fæðingar- og foreldraorlof
Fæðingar- og foreldraorlof
Fæðingar- og foreldraorlof, greiðslur, uppsagnarvernd, vernd áunninna réttinda o.fl.


Fæðingar- og foreldraorlof

Með aukinni þátttöku kvenna á vinnumarkaði hafa komið fram breytt viðhorf til hlutverka og verkaskiptingar kvenna og karla í samfélaginu. Forsenda þess að karlar og konur geti tekið jafnan þátt í launavinnu sem og öðrum störfum utan heimilis er að þau skipti með sér umönnun barna sinna.

Reynslan hefur enn fremur verið sú að margir feður hafi farið á mis við samvistir við börn sín en í könnun Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands frá árinu 1995 kom fram að velflestir karlkyns þátttakenda töldu að almennur áhugi ríkti meðal karla á að samræma atvinnuþátttöku og uppeldi barna. Af þessum ástæðum hafa komið fram auknar kröfur um að móður og föður verði sköpuð sömu tækifæri til að sinna bæði fjölskyldu og starfi utan heimilis.

Einn af þeim þáttum sem stuðla að samspili fjölskyldu- og atvinnulífs er að konur og karlar eigi jafnan rétt til fæðingarorlofs auk þess að eiga kost á sérstöku foreldraorlofi frá vinnu til að vera með börnum sínum.

Um rétt foreldra til fæðingar- og foreldraorlofs er fjallað í lögum um fæðingar- og foreldraorlof nr. 95/2000. Markmið laganna er að tryggja barni samvistir bæði við föður og móður. Þá er lögunum ætlað að gera bæði konum og körlum kleift að samræma fjölskyldu- og atvinnulíf.

Lögin fela í sér gildistöku tilskipunar 92/85/EB og gildistöku tilskipunar 96/34/EB um rammasamninginn um foreldraorlof sem Samtök evrópskra iðn- og atvinnurekenda (UNICE), Evrópusamtök fyrirtækja með opinberri eignaraðild (CEEP) og Evrópusamband verkalýðsfélaga (ETUC) hafa gert.



Hlutastarf

Starfsmaður telst vera í hlutastarfi ef umsamið starfshlutfall...