Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
Veikindi
Veikindi
Laun í veikindum, ávinnsla og tímalengd greiðslna o.fl.


Veikindi

Réttur launafólks til greiðslu launa í forföllum vegna sjúkdóma og slysa sem atvinnurekandi ber ekki ábyrgð á, er eitt það mikilvægasta sem áunnist hefur í kjarabaráttu verkalýðshreyfingarinnar. Tryggingin sem í því felst að njóta launagreiðslna í slíkum tilvikum hefur meðal annars verið keypt því verði að umsamdar launahækkanir hafa verið gefnar eftir. Því má segja að launafólk greiði þessa tryggingu sjálft. Þetta gerðist m.a. á árinu 1978, þegar lög voru sett á gildandi kjarasamninga, en stjórnvöld hétu launafólki í staðinn félagslegum umbótum. Lágmarksréttindi hér að lútandi er nú að finna í lögum um rétt verkafólks til uppsagnarfrests frá störfum og til launa vegna sjúkdóms- og slysaforfalla nr. 19/1979. Þessi réttindi eru óaðskiljanlegur hluti af launakjörum hvers og eins og ekki er hægt í ráðningarsamningi að semja sig frá reglum um þau eða afsala sér þeim.

Mikilvægt er að það launafólk sem lendir í slysum við störf sín eða á leið til eða frá vinnu kanni mjög vel rétt sinn vegna þeirra. Annars vegar vegna þess að afleiðingar slysa koma oft á tíðum fram á löngum tíma. Þannig getur skaði sem í upphafi virðist lítill leitt til verulega skerts aflahæfis síðar á ævinni. Hins vegar vegna þess að ef orsakir slyss er að rekja til sakar atvinnurekanda eða aðila sem hann ber ábyrgð á getur launafólk átt rétt til skaðabóta sem ákvarðaðar eru skv. skaðabótalögum nr. 50/1993 og geta numið verulegum fjárhæðum. Launafólki sem lendir i slysum er því ætíð bent á að leita til stéttarfélags síns til þess að fá rétt sinn kannaðan og eftir atvikum til þess að njóta aðstoðar frá lögfræðingum sem starfa á vegum félaganna.



Félagsleg undirboð

Félagsleg undirboð háttsemi erlendra fyrirtækja sem lýsir sér einkum í því að starfsmönnum þeirra eru ekki greidd laun í samræmi við lög og kjarasamninga í gistiríki, þeim er ekki tryggður sá aðbúnaður og öryggi á vinnustað sem lög gera kröfu um og svikist er um að greiða lög- og samningsbundin gjöld af þeim til stofnana samfélagsins, þ.m.t. stéttarfélaga. Með þessu er brotið bæði á hagsmunum viðkomanda starfsmanna og grafið undan stofnunum samfélagsins, tiltrú almennings á þeim og vilja þeirra til að fjármagna þær með sköttum og öðrum gjöldum.