Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 

Aðildarfélög Alþýðusambands Íslands

Aðildarfélög ASÍ sinna margs konar þjónustu fyrir félagsmenn sína. Þau gera kjarasamninga þar sem kveðið er á um laun og önnur starfskjör félagsmanna. Þau leiðbeina um túlkun kjarasamninga og aðstoða launafólk við að sækja rétt sinn gagnvart atvinnurekendum, s.s. við innheimtu launa, viðurkenningu á áunnum réttindum og varðandi öryggis- og aðbúnaðarmál. Þau leiðbeina og aðstoða félagsmenn sína í samskiptum við opinberar stofnanir á sviði vinnumarkaðsmála, s.s. Atvinnuleysistryggingasjóð, Fæðingarorlofssjóð og Ábyrgðasjóð launa.

Á vegum stéttarfélaganna eru reknir sjúkrasjóðir sem veita margháttuð réttindi, m.a. með greiðslu dagpeninga þegar félagsmenn veikjast eða lenda í slysum. Stéttarfélög reka í samstarfi við samtök atvinnurekenda fræðslustofnanir og fræðslusjóði og leiðbeina félagsmönnum sínum varðandi réttindi þeirra til endur- og eftirmenntunar og stuðning vegna símenntunar. Þá reka stéttarfélögin orlofshús og íbúðir víða um land og erlendis.

Alþýðusamband Íslands hvetur launafólk til að kynna sér starfsemi síns stéttarfélags og þá þjónustu sem það veitir félagsmönnum sínum. Jafnframt hvetur ASÍ launafólk til að taka virkan þátt í starfi stéttarfélaganna.

Aðildarfélögin innan Alþýðusambands Íslands eru 55 talsins. Flest eiga þau aðild að ASÍ í gegnum eitthvert fimm landssambanda ASÍ. Þó eiga sjö landsfélög beina aðild að ASÍ.



Starfsgreinasamband Íslands
Formaður:Kristján Gunnarsson
Sætúni 1, 105 Reykjavík
Sími 562 6410, símbréf 552 6830
Senda tölvupóst



Landssamband íslenzkra verslunarmanna      
Formaður: Ingibjörg R. Guðmundsdóttir
Kringlunni 7, 103 Reykjavík
Sími 510 1720, símbréf 510 1717
Senda tölvupóst


Samiðn, samband iðnfélaga
Formaður: Finnbjörn A. Hermannsson
Borgartúni 30, 108 Reykjavík
Sími 535 6000, símbréf 535 6020
Senda tölvupóst


Rafiðnaðarsamband Íslands
Formaður: Guðmundur Gunnarsson
Stórhöfða 31, 110 Reykjavík
Sími 580 5200, símbréf 580 5220
Senda tölvupóst


Sjómannasamband Íslands
Formaður: Sævar Gunnarsson
Sætúni 1, 105 Reykjavík
Sími 561 0769, símbréf 561 0774
Senda tölvupóst



Aukafélagar

eru jafnan taldir þeir sem ekki hafa formlega ...