Á nýjum tímum skipta alþjóðleg samskipti sífellt meira máli. Þetta á ekki síður við um verkalýðhreyfinguna en aðra. Á síðasta áratug hefur ASÍ tekið sífellt meiri þátt í samstarfi verkalýðshreyfingarinnar á norrænum, evrópskum og alþjóðlegum vettvangi. Með þessu hefur ASÍ tekið þátt í baráttu verkalýðshreyfingarinnar fyrir bættum kjörum og réttindum í Evrópu og heiminum öllum. Í þessu sambandi má t.d. minna á alþjóðlega baráttu fyrir mannréttindum, baráttuna gegn barnavinnu og baráttuna fyrir tryggingu félagslegra ákvæða í viðskiptasamningum. Stór hluti af þessu starfi fer fram í beinu samstarfi innan verkalýðshreyfingarinnar en sumt fer fram innan alþjóðastofnana eins og Alþjóðavinnumálastofnunarinnar (ILO) og Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar (WTO) þar sem ríkisstjórnir heimsins taka þátt. Hér á landi hefur ASÍ reynt að beita áhrifum sínum til þess að hafa áhrif á stefnu íslenskra stjórnvalda í þessu starfi.
EES-samningurinn hefur gagnast Íslandi vel frá því að hann tók gildi í upphafi ársins 1994. Hann var umdeildur í upphafi og margir höfðu áhyggjur af þróun mála, einkum ýmsu sem sneri að vinnumarkaðnum. Fljótlega kom í ljós að þessar áhyggjur voru óþarfar og EES-samningurinn hefur ekki fært með sér nein neikvæð áhrif á íslenskan vinnumarkað. Það virðist vera nokkuð samdóma álit þjóðarinnar að EES-samstarfið hafi verið til hagsbóta og hafi nýst íslensku atvinnulífi vel til sóknar. Innan ASÍ er almennt talið að EES-samningurinn hafi fært íslensku launafólki ýmsar réttarbætur og að aðildin hafi þannig skilað jákvæðum árangri.
Allt frá því að samningaviðræðurnar um EES-samninginn hófust, hefur verið unnið ötullega að Evrópumálum á vettvangi ASÍ. ASÍ hefur tekið mjög virkan þátt í Evrópusamstarfi verkalýðshreyfingarinnar á þessum tíma. Það gildir jafnt um norræna samstarfið sem fyrst og fremst beinist að Evrópu og samstarfið innan Evrópusambands verkalýðsfélaga (ETUC).
Á grundvelli EES-samningsins hefur ASÍ öðlast betri stöðu en ella innan ETUC og þannig komist í innsta hring. ASÍ hefur átt aðild að evrópsku vinnumarkaðsviðræðunum og tekið þátt í öllum samningum um réttarbætur í félags- og vinnumarkaðsmálum sem hafa verið gerðir milli ETUC og Evrópusamtaka atvinnurekenda. ESB hefur síðan breytt þessum samningum í löggjöf sem gildir fyrir allt EES-svæðið. Að þessu leyti hefur ASÍ komist mun lengra inn í löggjafarstarf á vettvangi EES en íslensk stjórnvöld. Nú eru í farvatninu sams konar samningsmöguleikar fyrir evrópsk starfsgreinasamtök. Mörg aðildarsamtaka ASÍ eiga aðild að Evrópusamtökum og því möguleika á aðild að slíkum samningum.
Þrátt fyrir ágæti EES-samningsins er hann greinilega orðinn mun veikari en áður var. Áherslur ESB hafa færst í aðrar áttir og þekking stjórnmála- og embættismanna innan ESB á samningnum hefur minnkað mikið. Því er orðið sífellt erfiðara fyrir EFTA-ríkin að ná fram þeim réttindum sem samningurinn gefur. Það gildir einnig um vinnumarkaðinn. EES-samningurinn hefur skipt miklu máli fyrir íslenskt atvinnulíf og miklu skiptir að veikari staða hans hafi ekki neikvæð áhrif á atvinnulíf hér á landi, t.d. að fyrirtæki flytji héðan til þess að komast betur inn á innri markaðinn. Í þessu sambandi má ekki gleyma áhrifum nýju evrópsku myntarinnar sem kann að valda því að fyrirtæki færi sig inn á evrusvæðið.
Í skýrslu utanríkisráðherra sem lögð var fram vorið 2000 er fjallað ítarlega um stöðu EES-samningsins. Segja má að þar komi fram sambærilegar áhyggjur um stöðu hans og verið hafa uppi innan ASÍ. Þátttaka Íslands sem fullvalda þjóðar í ákvarðanatöku á vettvangi EES hefur aldrei verið mikil vegna þess að við höfum orðið að yfirtaka þá löggjöf sem ákveðin er af öðrum. Veikari EES-samningur og þar með lakari kjör fyrir okkur hljóta að kalla á spurningar um hvernig að haga eigi viðbrögðum.
Nokkur umræða hefur verið um möguleika á því að Ísland geri tvíhliða samning við ESB í stað EES-samningsins. ASÍ leggst alfarið gegn slíkum hugmyndum og telur þær óraunhæfar. Hugmyndir af þessu tagi byggjast á því að Evrópusamstarfið snúist einungis um viðskipti. Að mati ASÍ snýst Evrópusamstarfið um nær allt okkar þjóðlíf. Þar má nefna málaflokka eins og félags- og vinnumarkaðsmál, neytendamál, menntamál, rannsóknir og þróun auk umhverfismála sem yrðu útundan í tvíhliða viðskiptasamningi. Það er augljóst að samtök eins og ASÍ hafa fengið betri sess en ella í Evrópusamstarfinu vegna aðildar Íslands að EES. Afturhvarf til tvíhliða samnings yrði stórt skref aftur á bak í Evrópusamstarfinu hvað áhrif ASÍ varðar.
Það er skoðun ASÍ að yfirlýsing um að sótt verði um aðild Íslands að ESB og upptöku evru sé eina færa leiðin fyrir þjóðina. Þannig verði látið á það reyna í aðildarviðræðum hvaða samningur Íslandi standi til boða og hann lagður fyrir þjóðina í atkvæðagreiðslu.
er sá réttu sem þú átt til launa ef þú getur ekki stundað vinnu...