XII. kafliUm sjúkrasjóði
49. greinSá sem öðlast hefur rétt til greiðslu úr sjúkrasjóði eins aðildarfélags, öðlast þann rétt hjá nýju aðildarfélagi skv. þeim reglum sem þar gilda eftir einn mánuð, enda hafi hann fram að því átt rétt hjá fyrra félaginu.Öllum aðildarfélögum sambandsins er skylt að setja sjúkrasjóðum félaganna reglugerðir sem hljóta skulu staðfestingu miðstjórnar ASÍ og standast lágmarksákvæði laga ASÍ. Miðstjórn skal við umfjöllun sína hafa hliðsjón af viðmiðunarreglum sem sambandsþing samþykkir. Breytingar á reglugerðum sjóðanna skulu sendar skrifstofu ASÍ.Um skil og gerð ársreikninga fer skv. 47.gr. laga þessara. Fimmta hvert ár að minnsta kosti skal stjórn sjúkrasjóðsins fá trygginga¬fræðing eða lög¬giltan endurskoðanda til þess að meta fram¬tíðar¬stöðu sjóðsins og semja skýrslu til stjórnar um at¬hugun sína. Stjórn sjóðsins skal skila skrifstofu ASÍ út¬tekt þessari með ársreikningi viðkomandi árs.Sjúkrasjóðir aðildarfélaganna skulu tryggja sjóðfélögum sem 1% iðgjald hefur verið greitt af í a.m.k. 6 mánuði, lágmarksbætur í veikinda- og slysatilfellum sem hér segir: a. Dagpeninga í veikinda- og slysaforföllum í 120 daga, að loknum greiðslum skv. veikinda- og slysaréttarákvæðum kjarasamninga. Dagpeningar skulu að viðbættum bótum almannatrygginga, greiðslum úr slysatryggingu launafólks eða annarri lögbundinni tryggingu, ekki nema lægri fjárhæð en 80% af meðaltali þeirra heildarlauna sem iðgjald hefur verið greitt af á síðustu 6 mánuðum. b. Dagpeninga í 90 daga, að loknum kjarasamningsbundnum greiðslum launagreiðanda vegna langveikra og alvarlega fatlaðra barna. Greiðslur skulu ekki nema lægri fjárhæð m.v. starfshlutfall sjóðfélaga en 80% af meðaltali þeirra heildarlauna sem iðgjald hefur verið greitt af á síðustu 6 mánuðum. Með langveikum börnum er átt við börn undir 18 ára aldri sem greinast með alvarlegan og/eða langvinnan sjúkdóm og þarfnast sérstakrar umönnunar. Með alvarlega fötluðum börnum er átt við börn undir 18 ára aldri sem greinast með alvarlega greindarskerðingu, geðraskanir eða alvarlega líkamlega hömlun og þarfnast sérstakrar umönnunar. c. Dagpeninga í 90 daga vegna mjög alvarlegra veikinda maka. Greiðslur skulu ekki nema lægri fjárhæð m.v. starfshlutfall sjóðfélaga en 80% af meðaltali þeirra heildarlauna sem iðgjald hefur verið greitt af á síðustu 6 mánuðum. d. Eingreiddar dánarbætur við andlát virks og greiðandi sjóðfélaga sem nemi 180.000.- krónum m.v. starfshlutfall hans. Rétthafar bóta eru maki sjóðfélaga og börn hans undir 18 ára aldri. Bótafjárhæð miðast við launavísitölu pr. 1.7 2006 og tekur sömu breytingum og hún. e. Daga fjölda greiddra dagpeninga skv. a lið, til þeirra sem greitt er hlutfallslega lægra iðgjald af en 1%, er heimilt að skerða í sama hlutfalli og iðgjaldið er lægra en 1%. f. Dagpeninga skv. a, b og c lið er heimilt að miða við meðaltal heildarlauna á síðustu 12 mánuðum í stað síðustu 6 mánaða, hafi tekjur sjóðfélaga breyst verulega til hækkunar eða lækkunar á viðmiðunartímabilinu. Jafnframt er heimilt að ákveða hámark dagpeninga skv. a, b og c lið sem þó sé ekki lægra en 250.000.- á mánuði miðað við launavísitölu pr. 1.7 2006 og tekur fjárhæðin sömu breytingum og hún. g. Réttur skv. a, b og c lið endurnýjast á hverjum 12 mánuðum, hlutfallslega eftir því sem hann er nýttur, talið frá þeim degi sem dagpeningagreiðslum líkur hverju sinni og greiðslur iðgjalda hefjast að nýju. Hafi iðgjöld til sjúkrasjóðs ekki verið greidd vegna sjóðfélaga, en hann getur fært sönnur á, að félagsgjöld til viðkomandi aðildarfélags hafi samkvæmt reglulega útgefnum launaseðlum verið dregin af launum hans síðustu 6 mánuði, skal hann njóta réttar skv. 4.mgr. eins og iðgjöld til sjúkrasjóðs hafi verið greidd.4.mgr. 49.gr. tekur gildi 1.7 2006 m.v. réttindaávinnslu frá 1.1 2006. Skila skal staðfestingu tryggingafræðings eða löggilts endurskoðanda skv. 3.mgr. 49.gr. í fyrsta sinn á árinu 2007 með ársreikningum fyrir fjárhagsárið 2006.
er einfaldlega launahækkanir að frádreginni verðbólgu...