VIII. kafliFormannafundir
35. greinFormannafundir aðildarfélaga ASÍ eru vettvangur stefnumótunar ASÍ og samráðs aðildarfélaga ASÍ milli sambandsþinga. Formannafundur skal kallaður saman að hausti það ár sem sambandsþing eru ekki haldin og ákveður miðstjórn fundarstað og fundartíma og eru fundir lögmætir ef löglega er til þeirra boðað.Slíkan formannafund skal boða bréflega með minnst þriggja vikna fyrirvara, en heimilt er að stytta þann tíma við sérstakar aðstæður.
36. greinÁ formannafundum eiga sæti formenn allra aðildarfélaga ASÍ, formenn aðildardeilda einstakra sambanda, forseti og varaforseti ASÍ, þeir miðstjórnarmenn ( aðal- og varamenn ) sem ekki eru formenn aðildarfélaga eða aðildardeilda auk formanns ASÍ – UL sbr. 29. gr. Félög, sem hafa ekki starfað á tímabilinu milli sambandsþings og formannafundar, hafa ekki sent skýrslu skv. 2. mgr. 47. gr., reikninga skv. 3. mgr. 47. gr. eða hafa vanrækt skattgreiðslur skv. IX. kafla eiga ekki rétt á fulltrúum. ASÍ skal standa straum af lágmarksendurgreiðslu vegna ferðakostnaðar sem einstök aðildarfélög verða fyrir, samkvæmt reglum sem miðstjórn samþykkir.
37. greinÁlit og ályktanir í stórmálum er miðstjórn ætlar að leggja fyrir formannafund, skal senda aðildarsamtökunum eigi síðar en hálfum mánuði fyrir fundinn, nema sérstakar ástæður hamli.Mál þau og tillögur sem einstök aðildarfélög óska að tekin verði fyrir á formannafundi, skal senda miðstjórn þremur vikum fyrir formannafund og skal miðstjórn leggja mál þau og tillögur fyrir fundinn, ásamt umsögn sinni.
38. greinFormannafundum skal stjórnað eftir því sem við á skv. þingsköpum ASÍ eins og þau eru á hverjum tíma. Fundarstjórn er í höndum forseta ASÍ.
39. greinFormenn aðildarfélaga og deilda sambandanna fara með atkvæðisrétt á formannafundum í samræmi við úthlutaðan fjölda fulltrúa hvers um sig á næstliðnu sambandsþingi. Í fjarveru þeirra fara varaformenn aðildarfélaga og deilda sambandanna með atkvæðisrétt á formannafundum. Miðstjórnarmenn ( aðal- og varamenn ), sem ekki eru jafnframt formenn aðildarfélaga eða deilda sambanda fara með eitt atkvæði hver sem og formaður ASÍ-UL. Til þess að tillaga teljist samþykkt á formannafundi þarf hún að hljóta einfaldan meirihluta atkvæða skv. 1.mgr. og atkvæði meirihluta þeirra formanna sem fundinn sækja. Miðstjórn, eða minnst 10 fulltrúar, geta krafist leynilegrar atkvæðagreiðslu um mál.
40. greinMiðstjórn getur kvatt saman formannafundi þegar mjög mikilvæg eða óvænt mál ber að höndum.Miðstjórn er skylt að kalla saman formannafund, ef meirihluti aðildarfélaganna innan Alþýðusambandsins eða aðildarsamtök með a.m.k. 1/5 hluta af heildarfélagsmannatölu ASÍ krefjast þess skriflega og greina það eða þau málefni er leggja á fyrir aukafundinn. Skal aukafundurinn kallaður saman með eins skömmum fyrirvara og aðstæður frekast leyfa.
eða hluta þess fela það í sér að nýr aðili...