Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 

Sýningarskilmálar 2008-2009

  
Listasafn ASÍ lánar Ásmundarsal og Gryfju án endurgjalds fyrir listsýningar. Sækja þarf um til listráðs Listasafns ASÍ til að fá úthlutað sýningartíma í húsinu.  Umsóknarfrestur fyrir sýningar á árinu 2009 er til 15. febrúar 2008. Umsækjendur eru beðnir um að senda inn umsókn með upplýsingar um náms- og sýningarferil, myndir af verkum og gera auk þess grein fyrir sýningarhugmyndum sínum. Stefnt er að því að úthlutun verði lokið fyrir 15. apríl 2008.  Hægt er að sækja um Ásmundarsal og Gryfju saman eða einungis annan salinn.
 
Hvert sýningartímabil með undirbúningstíma er að jafnaði um 4 vikur. Undirbúningstími hefst á þriðjudegi, en sýningaropnun er á laugardegi. Sérstök athygli skal vakin á því að einungis er unnt að vinna að uppsetningu sýninga í safninu  frá kl.  9.00 – 17.00  í undirbúningsviku,  þ.e. þann tíma sem starfsfólk er í húsinu. Húsinu er lokað kl. 17.00 alla daga.
 
Starfsmenn á vegum safnsins sjá um gæslu sýninga og aðstoða að hluta til við uppsetningu auk þess að sjá um ljósastillingar í sölum safnsins.  Safnið sendir út boðskort á eigin lista fyrir sýningar en lætur listamönnum í té boðskort til að senda á eigin lista. Sýningaropnun er í boði safnsin en án vínveitinga.  Annan  kostnað vegna sýninga greiða sýnendur.
 
Allar framkvæmdir vegna uppsetningar á sýningum í húsinu séu í samráði við forstöðumann. Sýnendum ber að ganga vel um húsið og skila sýningarsölum þannig að sýningu lokinni, að þeir beri engin ummerki sýninga.   Ef misbrestur verður á þessu,  munu  lagfæringar verða gerðar á kostnað sýnanda. Síðasti dagur sýningar er sunnudagur, en niðurtöku sýningar og frágangi skal lokið á mánudegi fyrir kl. 17.00.
  
    

Hér er hægt að fá nánari upplýsingar um salina

             

Safnið er opið frá kl. 13.00 – 17.00 alla daga nema mánudaga. Aðgangur að Listasafni ASÍ er ókeypis. Listasafn ASÍ tekur ekki hluta af söluandvirði verka sem seljast á sýningum í húsinu.

           

 Allar nánari upplýsingar veitir forstöðumaður.  Sími 511-5353 eða 896-6559.  Netfang listasi@centrum.is.

 

 



Jafnrétti

Allir einstaklingar skulu eiga jafna möguleika á að njóta...