Hlutverk samningahópsins er að annast undirbúning aðildarviðræðna við ESB að því er varðar kafla 30 (Utanríkisviðskipti og þróunarsamvinna) og kafla 31 (Utanríkis-, öryggis- og varnarmál). Í því felst einkum innri greining regluverks ESB af Íslands hálfu svo og sameiginleg greining með ESB, undirbúningur tillagna um samningsafstöðu Íslands, viðræður við ESB um samningsafstöðuna og nánari mótun hennar eftir því sem viðræðunum vindur fram og tilefni er til. Hópurinn skal vera samninganefnd og aðalsamningamanni til ráðgjafar meðan á aðildarviðræðum stendur.
María Erla Marelsdóttir hefur verið skipaður formaður samningshópsins og stýrir hún starfi hópsins og skiptir verkum eftir því sem þörf er talin á.
Fulltrúar ASÍ í samningahópi um utanríkisviðskipta-, utanríkis- og öryggismál eru:
Kristinn Örn Jóhannesson, kristinn@vr.is, formaður VR.
Til vara:
Gylfi Arnbjörnsson, gylfi@asi.is, forseti ASÍ.
Erindisbréf utanríkisráðuneytisins til ASÍ vegna skipunar í samningahóp um utanríkis- og öryggismál má lesa hér.
Erindisbréf frá ASÍ vegna þátttöku fultrúa ASÍ í samningahópnum má lesa hér.
einstaklingur eða fyrirtæki, sem hefur með höndum...