Hlutverk samningahópsins er að annast undirbúning aðildarviðræðna við ESB að því er varðar kafla 23 (Réttarvarsla og grundvallarréttindi) og kafla 24 (Dóms og innanríkismál). Ísland er þátttakandi í Schengensamstarfinu og hefur því nána samvinnu við ESB á þessu málefnasviði m.a. á grundvelli Dyflinnarsamningsins og fleiri tvíhliða samninga er málið varða. Samningahópurinn annast m.a. innri greining regluverks ESB af Íslands hálfu svo og sameiginleg greining með ESB, undirbúningur tillagna um samningsafstöðu Íslands, viðræður við ESB um samningsafstöðuna og nánari mótun hennar eftir því sem viðræðunum vindur fram og tilefni er til. Hópurinn skal vera samninganefnd og aðalsamningamanni til ráðgjafar meðan á aðildarviðræðum stendur.
Ragnhildur Helgadóttir er formaður samningahópsins um dóms- og innanríkismál. Hún stýrir starfi hópsins og skiptir verkum eftir því sem þörf er talin á.
Fulltrúar ASÍ í samningahópi um dóms- og innanríkismál eru:
Magnús M. Norðdahl, magnus@asi.is, lögfræðingur ASÍ.
Til vara:
Dalla Ólafsdóttir, dalla@asi.is, lögfræðingur ASÍ.
Erindisbréf frá utanríkisráðuneytinu til ASÍ vegna þátttöku fultrúa ASÍ í samningahópnum má lesa hér.
Erindisbréf frá ASÍ vegna þátttöku fultrúa ASÍ í samningahópnum má lesa hér.
veldur því að erlendur gjaldeyrir verður ódýrari í íslenskum...