Hlutverk samningahópsins er að annast undirbúning aðildarviðræðna við ESB að því er varðar kafla 13 (Sjávarútvegsmál). Í því felst einkum innri greining regluverks ESB af Íslands hálfu svo og sameiginleg greining með ESB, undirbúningur tillagna um samningsafstöðu Íslands, viðræður við ESB um samningsafstöðuna og nánari mótun hennar eftir því sem viðræðunum vindur fram og tilefni er til. Hópurinn skal vera samninganefnd og aðalsamningamanni til ráðgjafar meðan á aðildarviðræðum stendur.
Kolbeinn Árnason hefur verið skipaður formaður samningahópsins og stýrir hann starfi hópsins og skiptir verkum eftir því sem þörf er talin á.
Fulltrúar ASÍ í samningahópi um sjávarútvegsmál eru:
Hólmgeir Jónsson, hj@ssi.is, framkvæmdastjóri Sjómannasambands Íslands, skv. tilnefningu SSÍ.
Guðmundur Þ . Ragnarsson, gudmundur@vm.is, formaður Félags vélstjóra og málmtæknimanna, skv. tilnefningu VM.
Skúli Thoroddsen, skuli@sgs.is, framkvæmdastjóri Starfsgreinasambands Íslands.
Guðmundur Gunnarsson, gudmund@rafis.is, formaður Rafiðnaðarsambands Íslands.
Til vara:
Sævar Gunnarsson, sg@ssi.is, formaður Sjómannasambands Íslands, varamaður Hólmgeirs.
Halldór Arnar Guðmundsson, halldor.arnar@vm.is, starfsmaður Félags vélstjóra og málmtæknimanna, varamaður Guðmundar Þ. Ragnarssonar.
Signý Jóhannesdóttir, signy@stettvest.is, formaður Stéttarfélags Vesturlands, varamaður Skúla.
Guðrún Erlingsdóttir, runa@vr.is, starfsmaður VR, varamaður Guðmundar Gunnarssonar.
Erindisbréf frá utanríkisráðuneytinu til ASÍ vegna þátttöku fultrúa ASÍ í samningahópnum má lesa hér.
Erindisbréf frá ASÍ vegna þátttöku fultrúa ASÍ í samningahópnum má lesa hér.
eru jafnan taldir þeir sem ekki hafa formlega ...