Hlutverk samningahópsins er að annast undirbúning aðildarviðræðna við ESB að því er varðar kafla 16 (Skattamál), kafla 29 (Tollabandalag), kafla 32 (Fjárhagseftirlit) og kafla 33 (Fjárhags- og framlagamál). Í því felst einkum innri greining regluverks ESB af Íslands hálfu svo og sameiginleg greining með ESB, undirbúningur tillagna um samningsafstöðu Íslands, viðræður við ESB um samningsafstöðuna og nánari mótun hennar eftir því sem viðræðunum vindur fram og tilefni er til. Hópurinn skal vera samninganefnd og aðalsamningamanni til ráðgjafar meðan á aðildarviðræðum stendur.
Maríanna Jónasdóttir hefur verið skipaður formaður samningahóps um fjárhagsmál og stýrir hún starfi hópsins og skiptir verkum eftir því sem þörf er talin á.
Fulltrúar ASÍ í samningahópi um fjárhagsmál eru:
Ólafur Darri Andrason, oda@asi.is, hagfræðingur ASÍ.
Til vara:
Ingunn S. Þorsteinsdóttir, ingunn@asi.is, hagfræðingur ASÍ.
Erindisbréf frá utanríkisráðuneytinu til ASÍ vegna þátttöku fultrúa ASÍ í samningahópnum má lesa hér.
Erindisbréf frá ASÍ vegna þátttöku fultrúa ASÍ í samningahópnum má lesa hér.
veldur því að erlendur gjaldeyrir verður dýrari í íslenskum...