Hlutverk samningahópsins er að annast undirbúning aðildarviðræðna við ESB að því er varðar kafla 17 (Efnahags- og peningamálastefna). Í því felst einkum innri greining regluverks ESB af Íslands hálfu svo og sameiginleg greining með ESB, undirbúningur tillagna um samningsafstöðu Íslands, viðræður við ESB um samningsafstöðuna og nánari mótun hennar eftir því sem viðræðunum vindur fram og tilefni er til. Hópurinn skal vera samninganefnd og aðalsamningamanni til ráðgjafar meðan á aðildarviðræðum stendur.
Már Guðmundsson hefur verið skipaður formaður samningahóps um gjaldmiðilsmál og stýrir hann starfi hópsins og skiptir verkum eftir því sem þörf er talin á.
Fulltrúar ASÍ í samningahópi um gjaldmiðilsmál eru:
Gylfi Arnbjörnsson, gylfi@asi.is, forseti ASÍ.
Til vara:
Ólafur Darri Andrason, oda@asi.is, hagfræðingur ASÍ.
Erindisbréf frá utanríkisráðuneytinu til ASÍ vegna þátttöku fultrúa ASÍ í samningahópnum má lesa hér.
Erindisbréf frá ASÍ vegna þátttöku fultrúa ASÍ í samningahópnum má lesa hér.
Stjórnarskrá íslenska lýðveldisins mælir fyrir um bann við...