Hlutverk samningahópsins er að annast undirbúning aðildarviðræðna við ESB að því er varðar eftirfarandi kafla þar sem reglur ESB hafa að miklu leyti verið innleidar í íslenska löggjöf í gegnum EES-samninginn: Kafla 2 (Frjáls för vinnuafls), kafla 3 (Staðfesturéttur og þjónusta), kafla 4 (Frjálsir fjármagnsflutningar), kafla 6 (Félagaréttur), kafla 9 (Fjármálaþjónusta), kafla 10 (Upplýsingatækni og fjölmiðlar), kafla 14 (Flutningaþjónusta) og kafla 19 (Félags-og atvinnumál), kafla 21 (Evrópsk samgöngunet), kafla 25 (Vísindi og rannsóknir), kafla 26 (Menntun og menning), kafla 27 (Umhverfismál) og kafla 28 (Neytenda- og heilsuvernd). Í því felst einkum innri greining regluverks ESB af Íslands hálfu svo og sameiginleg greining með ESB, undirbúningur tillagna um samningsafstöðu Íslands, viðræður við ESB um samningsafstöðuna og nánari mótun hennar eftir því sem viðræðunum vindur fram og tilefni er til. Hópurinn skal vera samninganefnd og aðalsamningamanni til ráðgjafar meðan á aðildarviðræðum stendur.
Harald Asperlund er formaður samningahópsins um EES II, félagsmál, þjónusta, fjárfestingar, umhverfismál o.fl. Hann stýrir starfi hópsins og skiptir verkum eftir því sem þörf er talin á.
Fulltrúar ASÍ í samningahópi um EES II, félagsmál, þjónusta, fjárfestingar, umhverfismál o.fl. eru:
Ingibjörg R. Guðmundsdóttir, irg@landssamband.is, formaður landssambands íslenzkra verzlunarmanna.
Halldór Grönvold, halldor@asi.is, aðstoðarframkvæmdastjóri ASÍ.
Til vara:
Úlfhildur Rögnvaldsdóttir, ur@fvsa.is, formaður Félags verslunar- og skrifstofufólks Akureyri (varamaður Ingibjargar).
Maríanna Traustadóttir, marianna@asi.is, jafnréttisfulltrúi ASÍ (varamaður Halldórs).
Erindisbréf frá utanríkisráðuneytinu til ASÍ vegna þátttöku fultrúa ASÍ í samningahópnum má lesa hér.
Erindisbréf frá ASÍ vegna þátttöku fultrúa ASÍ í samningahópnum má lesa hér.
Þjóðarframleiðsla er landsframleiðsla að viðbættum...