Hlutverk samningahópsins er að annast undirbúning aðildarviðræðna við ESB að því er varðar eftirfarandi kafla þar sem reglur ESB hafa að miklu leyti verið innleidar í íslenska löggjöf í gegnum EES-samninginn: Kafla 1 (Frjálst vöryflæði), kafla 5 (Opinber útboð), kafla 7 (Hugverkaréttur), kafla 8 (Samkeppnismál), kafla 12 (Matvælaöryggi), kafla 15 (Orka), kafla 18 (Hagtölur) og kafla 20 (Atvinnu- og iðnstefna). Í því felst einkum innri greining regluverks ESB af Íslands hálfu svo og sameiginleg greining með ESB, undirbúningur tillagna um samningsafstöðu Íslands, viðræður við ESB um samningsafstöðuna og nánari mótun hennar eftir því sem viðræðunum vindur fram og tilefni er til. Hópurinn skal vera samninganefnd og aðalsamningamanni til ráðgjafar meðan á aðildarviðræðum stendur.
Bryndís Kjartansdóttir er formaður samningahópsins um EES I, vörur, orka, samkeppnismál o.fl.. Hún stýrir starfi hópsins og skiptir verkum eftir því sem þörf er talin á.
Fulltrúar ASÍ í samningahópi um EES I, vörur, orka, samkeppnismál o.fl. eru:
Finnbjörn A. Hermannsson, finnbjorn@fagfelagid.is, formaður Fagfélagsins.
Til vara:
Sigurður Bessason, sigurdur@efling.is, formaður Eflingar – stéttarfélags.
Erindisbréf frá utanríkisráðuneytinu til ASÍ vegna þátttöku fultrúa ASÍ í samningahópnum má lesa hér.
Erindisbréf frá ASÍ vegna þátttöku fultrúa ASÍ í samningahópnum má lesa hér.
Þjóðarframleiðsla er landsframleiðsla að viðbættum...