Hlutverk samningahópsins er að annast undirbúning aðildarviðræðna við ESB að því er varðar kafla 11 (Landbúnaðarmál og byggðaþróun). Í því felst einkum innri greining regluverks ESB af Íslands hálfu svo og sameiginleg greining með ESB, undirbúningur tillagna um samningsafstöðu Íslands, viðræður við ESB um samningsafstöðuna og nánari mótun hennar eftir því sem viðræðunum vindur fram og tilefni er til. Hópurinn skal vera samninganefnd og aðalsamningamanni til ráðgjafar meðan á aðildarviðræðum stendur.
Sigurgeir Þorgeirsson hefur verið skipaður formaður samningahóps um landbúnaðarmál og stýrir hann starfi hópsins og skiptir verkum eftir því sem þörf er talin á.
Fulltrúar ASÍ í samningahópi um landbúnaðarmál eru:
Níels S. Olgeirsson, niels@matvis.is, formaður MATVÍS.
Þráinn Hallgrímsson, thrainn@efling.is, skrifstofustjóri Eflingar – stéttarfélags.
Til vara:
Halldóra Sveinsdóttir, halldora@baran.is, framkvæmdastjóri Verkalýðsfélagsins Bárunnar (varamaður Níelsar).
Henný Hinz, henny@asi.is, hagfræðingur ASÍ (varamaður Þráins).
Erindisbréf frá utanríkisráðuneytinu til ASÍ vegna þátttöku fultrúa ASÍ í samningahópnum má lesa hér.
Erindisbréf frá ASÍ vegna þátttöku fultrúa ASÍ í samningahópnum má lesa hér.
Á vinnumarkaði er með orðinu félagsaðild vísað...