Hlutverk samningahópsins er að annast undirbúning aðildarviðræðna við ESB að því er varðar kafla 22 (Byggðamál og uppbyggingarstyrkja). Í því felst einkum innri greining regluverks ESB af Íslands hálfu svo og sameiginleg greining með ESB, undirbúningur tillagna um samningsafstöðu Íslands, viðræður við ESB um samningsafstöðuna og nánari mótun hennar eftir því sem viðræðunum vindur fram og tilefni er til. Hópurinn skal vera samninganefnd og aðalsamningamanni til ráðgjafar meðan á aðildarviðræðum stendur.
Ragnheiður Elfa Þorsteinsdóttir er formaður samningahópsins um byggða og sveitarstjórnarmál. Hún stýrir starfi hópsins og skiptir verkum eftir því sem þörf er talin á.
Fulltrúar ASÍ í samningahópi um byggða- og sveitarstjórnarmál eru:
Sverrir Albertsson, salb@asa.is, framkvæmdastjóri AFLs, Starfsgreinafélags.
Guðbrandur Einarsson, bubbi@vs.is, formaður Verslunarmannafélags Suðurnesja.
Til vara:
Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir, hjordis@asa.is, formaður AFLs, Starfsgreinafélags (varamaður Sverris).
Halldór Grönvold, halldor@asi.is, aðstoðarframkvæmdastóri ASÍ (varamaður Guðbrands).
Erindisbréf frá utanríkisráðuneytinu til ASÍ vegna þátttöku fultrúa ASÍ í samningahópnum má lesa hér.
Erindisbréf frá ASÍ vegna þátttöku fultrúa ASÍ í samningahópnum má lesa hér.
Orðið iðngrein vísar til atvinnustarfsemi, sem er rekin í...