Á þessum hluta vefsins hafa verið teknar saman upplýsingar um ýmis réttindi einstaklinga á vinnumarkaði, sem ýmist byggja á kjarasamningum eða lögum og reglugerðum sem verkalýðshreyfingin hefur beitt sér fyrir.
Áhersla er lögð á upplýsingar um þann hluta réttinda launafólks sem heildarsamtökin hafa verið ábyrg fyrir í samskiptum sínum við bæði atvinnurekendur og stjórnvöld. Sem dæmi um þessi réttindi má nefnda réttindi foreldra í fæðingar- og foreldraorlofi, réttindi útlendinga á vinnumarkaði, skipulag vinnutíma, lágmarksréttindi í lífeyrissjóðum og sjúkrasjóðum, ýmsa þætti launa og kjaramála, vinnuvernd og lífið í vinnunni.
Ljóst er að ýmsar upplýsingar um mikilvæga þætti í réttindum launafólks á vinnumarkaði er að sækja hjá stéttarfélagi viðkomandi, sérstaklega hvað varðar röðun í launatöflur, réttindi til launa í veikindum bæði hjá atvinnurekanda og sjúkrasjóðum svo ekki sé minnst á fræðslusjóði stéttarfélaganna.