Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 

Fréttabréf ASÍ


Janúar 2012

Í fréttabréfi janúarmánaðar er fjallað um endurskoðun kjarasamninga og tilraunaverkefni sem verður hleypt af stokkunum í vor um þjónustu stéttarfélaga við atvinnuleitendur. Einnig er grein um vaxtamál í framhaldi af fundarröð sem ASÍ stóð fyrir í desember og janúar auk þess sem fjallað er um það öfluga fræðslustarf sem unnið er innan verkalýðshreyfingarinnar.
Lesa meira

Desember 2011

Meðal efnis í fréttabréfi desembermánaðar er yfirlit yfir stöðu mála sem snúa að verkalýðshreyfingunni eftir samþykkt fjárlaga. Fjallað er um atvinnuleysi og spurt hvort það hafi í raun minnkað að undaförnu. Birt er grein um vernd og réttarstöðu uppljóstrara og fjallað um danska húsnæðislánakerfið og þeirri spurningu velt upp hvort það gæti hentað hér á landi.
Lesa meira

Nóvember 2011

Í fréttabréfi nóvembermánaðar er m.a. reynt að svara þeirri fullyrðingu sem oft heyrist fleygt að bætur dragi úr viljanum til vinnu. Einnig er gerður samanburður á framlögum á Íslandi og ESB löndum til virkra vinnumarkaðsaðgerða, nýr dómur Hæstaréttar um það hvort greiða skuli fyrir auknar starfsskyldur er reifaður og birt eru brot úr fróðlegu erindi Runólfs Ágústssonar sem flutt var á formannafundi ASÍ.
Lesa meira

Október 2011

Í fréttabréfi októbermánaðar fjallar forseti ASÍ m.a. um fjárfestingar, græna hagkerfið og gengismál. Einnig er þar að finna greinar um hagvöxt miðað við mismunandi fjárfestingaleiðir, fjallað er um bætta réttarstöðu launafólks við gjaldþrot og aðilaskipti fyrirtækja og nýja reglugerð um tilkynningu og skráningu atvinnusjúkdóma sem bætir stöðu launafólks.
Lesa meira

Maí 2011

Í fréttabréfi maímánaðar er efni tengt kjarasamningum aðildarsamtaka ASÍ og SA sem undirritaðir voru fimmtudaginn 5. maí 2011.
Lesa meira

Apríl 2011

Í apríl fréttabréfi Alþýðusambandsins er m.a. fjallað um stöðuna í kjaraviðræðunum og furðulega framkomu SA undanfarnar vikur. Einnig er athyglisverð grein um afar jákvætt átak um að efla menntun, auka vinnumarkaðsúrræði og aukið framboð af úrræðum fyrir atvinnuleitendur. Þá er fjallað um ASÍ-UNG sem er ungliðahreyfing innan ASÍ sem verður formlega hleypt af stokkunum í lok maí auk þess sem ný húsnæðisstefna er tekin til umfjöllunar.
Lesa meira

Mars 2011

Fréttabréf marsmánaðar er alfarið helgað þjóðaratkvæðagreiðslunni um Icesave samningana sem fram fer þann 9. apríl. Í fréttabréfinu er leitast við að svara nokkrum lykilspurningum um Icesave á einfaldan og hlutlægan hátt. Auk þess er birt greinagerð hagdeildar ASÍ um málið.
Lesa meira

Febrúar 2011

Meðal efnis í nýju fréttabréfi ASÍ er grein um gang kjaraviðræðna, fjallað um samanburð á lágmarkslaunum í fjölmörgum Evrópulöndum, sagt frá nýlegum fundi norrænu alþýðusambandanna með forystumönnum kínversku verkalýðshreyfingarinnar og birt umsögn ASÍ um drög að nýrri aðalnámskrá framhaldsskóla.
Lesa meira

Janúar 2011

Forseti ASÍ skýtur föstum skotum að SA og útgerðaraðlinum fyrir að taka kjaraviðræður þorra launamann í gíslingu. Fjallað er um þá kröfu verkalýðshreyfingarinnar að lífeyrisréttindi launafólks á almennum vinnumarkaði verði jöfnuð á við lífeyrisréttindi opinberra starfsmanna. Í grein um ástandið á vinnumarkaði er bent á þá staðreynd að fjóðrungur atvinnulausra hefur verið án vinnu í 12 mánuði eða lengur. Einnig má finna efni um nýlegar breytingar á atvinnuleysistryggingum og félagslega fræðslu innan verkalýðshreyfingarinnar.
Lesa meira

Mars 2010

Forseti ASÍ gagnrýnir stjórnvöld fyrir framtaksleysi í atvinnumálum og Samtök atvinnulífsins fyrir ábyrgðarleysi að ganga frá stöðugleikasáttmálanum. Fjallað er um skuldbindingar lífeyrissjóða með ábyrgð ríkis- og sveitarfélaga. Í greininni kemur fram að 522 milljarða króna halli sé á opinbera lífeyriskerfinu og færð rök fyrir því að það sé að komast í þrot. Ný lög um framhaldsfræðslu og lagafrumvörp sem bæta stöðu skuldara eru einnig til umfjöllunar í fréttabréfinu.
Lesa meira

Janúar 2010

Forseti ASÍ gagnrýnir ríkisstjórnina fyrir aðgerðarleysi í atvinnumálum og greiðsluvanda heimilanna. Sagt er frá nýrri skoðanakönnun sem sýnir að stærstur hluti þeirra sem hafa leitað eftir sérstökum úrræðum til að láta enda ná saman hefur ekki fengið úrlausn sinna mála. Fjallað er um róttækar tillögur ASÍ í þágu skuldara, þróun á vöruverði 2008-2010 er skoðuð og sagt frá undirbúningi aðildarviðræðna við ESB.
Lesa meira

Desember 2009

Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ ræðir um þá stefnu ríkisstjórnarinnar að afnema verðtryggingu persónuafsláttar og virða ekki gerða samninga við verkalýðshreyfinguna, fjallað er um vinnustaðaskírteini, skert starfshlutfall og atvinnuleysisbætur, horfur í atvinnumálum og erfiðleika neytenda við að fylgjast með lyfjaverði.
Lesa meira

Nóvember 2009

Meðal efnis er forsetabréf þar sem m.a. eru hugleiðingar um fyrirhugaðar skattahækkanir. Ein grein fjallar um boðaða skerðingu á réttindum í fæðingarorlofssjóði, önnur um nýjan tón í atvinnustefnu ASÍ, fjallað er um þróun kaupmáttar og fleira athyglisvert efni.
Lesa meira

Apríl 2009

Meðal efnis í fréttabréfi aprílmánaðar er forsetabréf þar sem m.a. er fjallað um mikilvægi trúverðugleika Íslands í endurreisnarferlinu. Einnig er fjallað um rökin fyrir því afhverju ASÍ telur rétt að fara í aðildarviðræður við ESB, rætt um greiðsluvanda heimilanna og bráðaaðgerðir gegn atvinnuleysi og að lokum er Genfarskólinn kynntur.
Lesa meira

Mars 2009

Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ fjallar um Evrópumál og mikilvægi þess að farið verði í aðildarviðræður við ESB sem allra fyrst. Spurt er, þarf ísskápur sem kostaði 100.000 í fyrra að kosta 200.000 í dag? Greiðsluaðlögun í bígerð, mikill áhugi á námi Félagsmálaskólans og ýmislegt fleira í fréttabréfi marsmánaðar.
Lesa meira

Febrúar 2009

Forsetabréf. Kynbundinn launamunur - sláandi munur á landsbyggðinni. Ungt fólk í miklum greiðsluerfiðleikum. Tilskipanir ESB um bann við mismunun verða teknar í gildi hér á landi. Félagsmálaskólinn – brugðist við auknu atvinnuleysi. Fréttir af vettvangi miðstjórnar ASÍ.
Lesa meira