Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
11. október 2008

Vinnuverndarstarf á óvissutímum

Þau efnahagslegu áföll sem nú dynja á íslensku þjóðinni koma við okkur öll
og hefur áhrif á líðan okkar. Þær aðstæður sem nú hafa skapast gera að
verkum að áhyggjur okkar beinast að mörgum þáttum og áhyggjurnar eru með
okkur hvort sem við erum heima eða í vinnunni.

Við stöndum frammi fyrir því að á vinnustöðum getur skapast andrúmsloft
blandið óvissu og óöryggi. Þess vegna er mikilvægt að hver og einn hugi að
eigin líðan og líðan annarra á vinnustaðnum. Kvíði tengdur
fjárhagsáhyggjum getur dregið úr vinnuafköstum og einbeitingu. Fjárhagsleg
ábyrgð á fyrirtækjum og mannaforráð þegar illa árar er verulegur
streituvaldur.
Ábyrgð atvinnurekenda er meðal annars fólgin í því að tryggja góðan
aðbúnað og heilsusamleg starfsskilyrði á vinnustaðnum og stuðla þannig að
góðri heilsu og vellíðan.
Það sem hver og einn getur gert á sínum vinnustað til að stuðla að góðu og
uppörvandi andrúmslofti er að leggja sig fram um jákvæð samskipti. Að sýna
gott fordæmi, vera til staðar fyrir samstarfsfólk, þegar á þarf að halda,
og veita félagslegan stuðning getur virst smávægilegt en er í raun og veru
stórt framlag til vinnustaðarins.
Gera má ráð fyrir að í mörgum fyrirtækjum muni þurfa að sýna sveigjanleika
í rekstri og bregðast skjótt við nýjum aðstæðum á vinnumarkaði. Mikilvægt
er að stjórnendur hugi að því að draga úr óvissu meðal starfsmanna og koma
þannig í veg fyrir óþarfa álag sem getur leitt til streitu. Þetta er hægt
að gera með markvissri og ábyrgri upplýsingagjöf. Einnig er mikilvægt að
huga að því að virkja krafta allra starfsmanna til að finna lausn á þeim
vanda sem kann að steðja að og ýta þannig undir samheldni á vinnustaðnum.
Mikilvægt er að starfsfólk finni að á það sé hlustað og það hafi möguleika
á að taka þátt í ákvörðunum sem varða störf þeirra, ekki síst þegar á móti
blæs.
Á hverjum vinnustað er einnig brýnt að hugað sé að þeim sem höllum fæti
standa af einhverjum ástæðum. Það getur átt við skuldsett fólk, erlenda
starfsmenn, fólk með fötlun eða langvinna sjúkdóma, ungt starfsfólk og
einstæða foreldra. Taka ber tillit til mismunandi vinnufærni starfsmanna
og stuðla að því að fólk með skerta vinnugetu fái haldið störfum sínum á
vinnumarkaði og komið aftur til starfa eftir slys eða veikindi, hvort sem
þau eru andlegs og/eða líkamlegs eðlis.
Gott er að hafa í huga að jafnvægi sé milli krafna og úrræða á
vinnustöðum. Ennfremur er mikilvægt að meta hættuna af ýmsum andlegum og
félagslegum áhættuþáttum á vinnustaðnum (sjá sértækan vinnuumhverfisvísi
um félagslegan og andlegan aðbúnað á vinnustað á heimasíðu
Vinnueftirlitsins).

Mikilvægt er að leggja áherslu á eftirfarandi:

* vandaða stjórnunarhætti
* góða upplýsingamiðlun
* virðingu
* trúnað
* samheldni
* vandaða umræðu og sýna skilning á því ástandi sem nú er í samfélaginu og
snertir marga

Forvarnir á vinnustaðnum geta falist í eftirfarandi:

* stefna fyrirtækis og hlutverk starfsmanna séu skýr,
* markvissri og ábyrgri upplýsingagjöf þannig að óþarfa óvissu sé eytt,
* starfsmannafundir séu nýttir til að ýta undir uppbyggilega umræðu um
stöðu mála og leitað eftir hugmyndum starfsmanna um það sem betur mætti
fara,
* höfð sé milliganga um að veita ráðgjöf þeim sem á þurfa að halda,
* vinnan sé skipulögð þannig að kröfur til starfsmanna séu hóflegar, þ.e.
hvorki of miklar né of litlar,
* allir starfsmenn hafi tækifæri til að taka virkan þátt í umræðum og
ákvörðunum, sem tengjast heilsu og öryggi á vinnustaðnum, og  geti haft
frumkvæði að úrbótum,
* á vinnustaðnum sé stuðlað jafnvægi milli vinnu og einkalífs,
* stjórnendur sýni gott fordæmi hvað varðar samskipti og ábyrga
stjórnunarhætti,
* hugað sé að vinnu- og hvíldartíma starfsfólks. Afköst og gæði í vinnu
aukast ekki samfara lengri vinnutíma,
* stjórnendum og starfsfólki sé veittur félagslegur stuðningur,
* tengsl séu efld milli vinnustaðar og þess samfélags sem hann tilheyrir,
* stuðla skal að því að á vinnustaðnum sé stutt við og starfað með
samtökum sem vinna að umbótum á sviði heilbrigðis-, félags-, menningar- og
velferðarmála.

Með kveðju,
Vinnueftirlitið og
Rannsóknastofa í vinnuvernd


Til baka


Kaupmáttur launa

er einfaldlega launahækkanir að frádreginni verðbólgu...