Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 

Efnahagsþrengingar - mikilvægar upplýsingar

Atvinnulíf Íslendinga gengur nú í gegnum mikinn ólgusjó og óvissan knýr dyra á mörgum heimilum.  Skrifstofa Alþýðusambandsins hefur fundið fyrir aukinni eftirspurn eftir allskyns upplýsingum er varða réttindamál launafólks.

12. janúar 2010
Rekstrarerfiðleikar, atvinnuleysi og réttarstaða launafólks
Launafólk finnur hratt fyrir rekstrarerfiðleikum þeirra fyrirtækja sem það starfar hjá. Afleiðingar þeirra eru uppsagnir, hópuppsagnir, aðilaskipti að rekstri, gjaldþrot og atvinnuleysi. Mikilvægt er að staðið sé rétt að öllum breytingum og að réttindi launafólks séu ekki fyrir borð borin. Í þessu upplýsingariti ASÍ er gerð grein fyrir helstu reglum á þessu sviði og fjallað ítarlega um atvinnuleysisbætur launafólks og sjálfstætt starfandi einstaklinga, skert starfshlutfall og hlutabætur sem er nýtt úrræði og loks er fjallað um atvinnuleit, endurmenntun o.fl. Rekstrarerfiðleikar, atvinnuleysi og réttarstaða launafólks
Lesa meira
14. október 2009
Iðgjöld til lífeyrissjóðanna tapast þau og hver er staða sjóðanna
Vegna þeirra efnahagsörðugleika sem á hafa dunið er fyrirsjáanlegt að lífeyrissjóðir landsmanna munu rýrna og margir spyrja sig hvað verði um þau iðgjöld sem þessa dagana er verið að innheimta til lífeyrissjóðanna og hver sé staða lífeyrissjóðanna almennt. Því er reynt að svara hér.
Lesa meira
08. október 2009
Fjármál heimilanna í efnahagsþrengingum
Í þeim efnahagsþrengingum sem nú ganga yfir er óvissa margra heimila mikil varðandi eignir sínar og skuldir og ekki síður varðandi atvinnu og afkomu á komandi mánuðum. Þetta skapar eðlilega mikinn óróa meðal fólks og margir glíma við miklar fjárhagsáhyggjur. Í þessu upplýsingariti eru tekin saman úrræði sem heimilin geta nýtt sér til að fá yfirsýn yfir fjárhagsstöðu sína og fjallað leiðir sem færar eru efgreiðsluerfiðleikar blasa við.
Lesa meira
09. janúar 2009
Spurt og svarað
Í þessu skjali er að finna samantekin svör við flestum þeim spurningum sem rekja má út úr því upplýsingaefni sem ASÍ hefur gefið út vegna yfirstandandi efnahagsþrenginga. Fjallað er um uppsagnir, hópuppsagnir, aðilaskipti, gjaldþrot, atvinnuleysi, atvinnuleysisbætur þ.m.t. hlutabætur, innistæður í bönkum, lífeyriseignir og ýmis úrræði vegna greiðsluerfiðleika.
Lesa meira
06. nóvember 2008
Námskeiðahald í efnahagsþrengingum
Eitt af forgangsverkefnum Félagsmálaskóla alþýðu undanfarið hefur verið að styrkja og efla aðildarfélögin við að upplýsa og aðstoða félagsmenn, sem lenda í efnahagsþrengingum og atvinnumissi.
Lesa meira
16. október 2008

11. október 2008

10. október 2008

 

Gagnlegir tenglar




Aðildarskylda

Stjórnarskrá íslenska lýðveldisins mælir fyrir um bann við...