Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 

Verðlagseftirlit ASÍ

Verðlagseftirlit ASÍ hóf starfsemi á grundvelli yfirlýsingar forsætisráðherra í tengslum við endurskoðun kjarasamninga í mars 2001, þar sem því var heitið að fjármagna hana til ársloka 2003. Það liggur hins vegar fyrir nú að starfsemi verðlagseftirlitsins hefur verið tryggð og verður áfram ríkur þáttur í starfsemi skrifstofu ASÍ.

Markmið verðlagseftirlitsins er annars vegar að auka upplýsingastreymi til neytenda og efla þannig neytendavitund og hins vegar að veita fyrirtækjum og stofnunum aðhald. Megináhersla í störfum verðlagseftirlitsins hefur verið lögð á að skoða matvörumarkaðinn en einnig hefur sjónum verið beint að ýmsu öðru sem viðkemur pyngju neytenda.

Verklagsreglur fyrir Verðlagseftirlit ASÍ má sjá hér



Hlutastarf

Starfsmaður telst vera í hlutastarfi ef umsamið starfshlutfall...