Launafólki á Íslandi ber samkvæmt kjarasamningum og lögum að greiða 4% af launum sínum til lífeyrissjóðs og atvinnurekanda að leggja fram 8% mótframlag til sjóðsins. Þetta iðgjald tryggir sjóðfélögum eftirlaun í ellinni en einnig greiðslu örorkubóta og barnabóta ef þeir missa starfsgetuna á starfsævinni. Ef sjóðfélagi fellur frá vegna veikinda eða slyss tryggir sjóðurinn eftirlifandi maka makabætur og barnabætur. Lífeyrissjóðirnir gegna því ekki síður mikilvægu hlutverki sem fjölskyldutrygging fyrir afkomu ungs fólks sem lendir í alvarlegum áföllum.
Sjóðsöfnun
Við leggjum saman í sjóð sem er ávaxtaður til að greiða okkur öllum lífeyri til æviloka. Vaxtatekjur mynda þannig yfir helminginn af útborguðum lífeyri. Þannig er lífeyrir framtíðarinnar tryggður með traustum sjóði fremur en vaxandi skattbyrði á afkomendur okkar.
Þetta er einn mesti styrkur íslenska lífeyrissjóðakerfisins, en mörg ríki glíma nú við mikinn vanda vegna þess að lífeyriskerfi þeirra byggja á s.k. gegnumstreymiskerfi. Það þýðir að lífeyrisgreiðslur á hverjum tíma eru fjármagnaðar af þeirri kynslóð sem er á vinnumarkaði með sköttum. Þetta skapar mikinn vanda þegar aldurssamsetning þjóða breytist og fámennari kynslóðir yngra fólks þurfa að standa undir lífeyrisgreiðslum til fjölmennari kynslóða eldra fólks. Hér á landi eru í dag um 6 manns á vinnumarkaði fyrir hvern einn sem er á eftirlaunum. Árið 2030 munu ekki vera nema 3 á vinnumarkaði fyrir hvern eftirlaunaþega og mun það hlutfall halda áfram að lækka fram til 2050.
Samtrygging
Aðild að lífeyrissjóði tryggir þér verðtryggðan lífeyri til æviloka óháð kyni. Með samábyrgð og þátttöku allra tryggjum við einnig afkomu þeirra sem verða fyrir áfalli vegna sjúkdóms eða slyss og afkomu fjölskyldunnar við fráfall. Samtryggingin byggir á að lífeyrissjóðurinn tryggir alla sjóðfélaga gegn sama hlutfallsega iðgjaldi óháð kyni, aldri, áhættu í starfi eða öðrum þáttum sem hafa áhrif á örorkulíkur eða dánarlíkur viðkomandi.
Skylduaðild
Aðild að lífeyrissjóði er hluti af umsömdum kjörum hverrar starfsstéttar eða starfshóps. Skylduaðildin er forsenda þess að við getum dreift áhættunni jafnt, að allir séu með, og forðast mismunun og tryggt öllum lífeyri, óháð efnahag og aðstæðum. Öryggið sem almennu lífeyrissjóðirnir veita kostar lítið í samanburði við ýmsar tryggingar sem bjóðast til kaups. Þátttaka í lífeyrissjóðakerfinu hefur verið mjög góð og því dreifist áhættan á mjög marga. Almennu lífeyrissjóðirnir eru því raunverulegt samtryggingarkerfi.
Sögulegt ágrip
Einn af mikilvægustu áföngunum í baráttu íslenskrar verkalýðshreyfingar er kjarasamningur ASÍ og VSÍ frá 1969 um stofnun almennra lífeyrissjóða fyrir alla launamenn. Samningurinn skyldar launagreiðanda til þess að taka þátt í að greiða í lífeyrissjóð fyrir starfsmenn sína og tryggja þeim þannig lífeyrisréttindi við starfslok vegna aldurs eða örorku og sömuleiðis eftirlifandi maka og börnum lífeyrir við andlát. Ágrip af sögu íslenska lífeyrissjóðakerfisins má lesa hér.
Stjórnkerfi lífeyrissjóðanna
Stjórnkerfi lífeyrissjóðanna á almennum vinnumarkaði endurspeglar þá áherslu í kjarasamningnum um lífeyrismál að rekstur og gæsla sjóðanna sé á sameiginlegri ábyrgð atvinnurekenda og launafólks. Stjórnir sjóðanna eru ávallt skipaðar fulltrúum stéttarfélag og samtaka atvinnurekenda að jöfnu og fulltrúar þessara aðila skiptast á að hafa á hendi formennsku í stjórninni. Upplýsingar um stjórnkerfi almennu lífeyrissjóðanna má lesa hér.
Nánari upplýsingar:
Kjarasamningur um lífeyrismál frá 1969
Fyrirmyndarreglugerð fyrir lífeyrissjóði frá 1970
Markmið og hlutverk lífeyrissjóða e. Ásmund Stefánsson frá 1994
Kjarasamningur ASÍ og VSÍ um lífeyrismál frá 1995
Viðbótarsamningur ASÍ og SA um ráðstöfun viðbótariðgjalda frá 2005
Viðbótarsamningur ASÍ og SA um lágmarksréttindi við breytingar í aldurstengd réttindi
Samkomulag við stjórnvöld um framlög til að lækka og jafna örorkubyrði lífeyrissjóðanna
Lífeyrissjóðir á samningssviði ASÍ og SA
Lög um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða nr. 129/1997
Íslenska lífeyriskerfið e. Má Guðmundsson
Gagnlegir tenglar:
Landssamtök lífeyrissjóða eru með vef þar sem m.a. má finna ýmsar handhægar upplýsingar um lífeyrisréttindi.
Tryggingastofnun ríkisins er með ítarlegan vef þar sem er að finna upplýsingar um réttindi í opinbera tryggingakerfinu.
Gott að vita - fræðsluvefur Landssamtaka lífeyrissjóða.
Lífeyrissjóðurinn þinn – upplýsingabæklingur um lífeyrismál frá Landssamtökum lífeyrissjóða.
Skipting ellilífeyrisréttinda milli hjóna – upplýsingabæklingur frá Landssamtökum lífeyrissjóða.
Allflestir lífeyrissjóðir eru með sína eigin heimasíðu.
Umfjöllun um lífeyrismál á vettvangi ASÍ :
Ályktun ársfundar ASÍ 2009 um heildarendurskoðun á stefnu Alþýðusambandsins í málefnum lífeyrissjóða.
Umsögn miðstjórnar ASÍ um tillögur Verkalýðsfélags Akranes um breytingar á kjarasamningi ASÍ og SA (áður VSÍ) frá 1995 um lífeyrismál.
Ályktun ársfundar ASÍ 2009 um skattlagningu á inngreiðslur í lífeyrissjóði.
Ályktun ársfundar ASÍ 2009 um tekjutengingu lífeyris.
Námskeið á vegum ASÍ um ábyrgð og árangur stjórnarmanna í lífeyrissjóðum í samstarfi við HR í september 2009.
Ráðstefna á vegum ASÍ um hlutverk og ábyrgð stjórnarmanna í lífeyrissjóðum í Þjóðmenningarhúsinu 11. júní 2009 – erindi ráðstefnunnar má finna hér
Ályktun miðstjórnar ASÍ frá 1.apríl 2009 um siðareglur um stefnu og starfssemi lífeyrissjóða.
Tillögur Lífeyrisnefndar ASÍ að reglum um samfélagslega ábyrgar fjárfestingar lífeyrissjóðanna - Samþykkt í miðstjórn ASÍ 15.apríl 2009.
Tillögur Skipulags og starfsháttarnefndar ASÍ að ákvæðum um innri starfsemi lífeyrissjóðanna – Samþykkt í miðstjórn ASÍ 15.apríl 2009.