Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 

Búseta á Íslandi


Samkvæmt c-lið 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar (ATVL) er það skilyrði bótaréttar að hinn tryggði sé búsettur á Íslandi þann tíma sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur.

Atvinnuleysistryggingar eru fjármagnaðar með atvinnutryggingagjaldi sem atvinnurekendur greiða. Upphæð þessa gjalds byggir á upplýsingum um fjárhagsstöðu sjóðsins hverju sinni og mati á þróun atvinnumála og atvinnuleysis á innlendum vinnumarkaði. Lög um atvinnuleysistryggingar ná ekki markmiði sínu sem hluti af gangverki vinnumarkaðarins nema gerð sé krafa um að hinn tryggði sé búsettur hér á landi og í virkri atvinnuleit á innlendum vinnumarkaði þann tíma sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur. Umsækjandi verður þannig að vera með skráð lögheimili í tilteknu sveitarfélagi hér á landi þann tíma sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur.

Vinnumálastofnun er heimilt við vissar aðstæður að veita undanþágu frá þessu skilyrði um búsetu hér á landi vegna þeirra sem uppfylla skilyrði laganna til að fá greiddar atvinnuleysisbætur meðan þeir dvelja tímabundið í öðru EES-ríki við atvinnuleit.



Aðildarskylda

Stjórnarskrá íslenska lýðveldisins mælir fyrir um bann við...