28. janúar 2008 10:27
Launavísitalan hækkaði um 0,2% í desember sl. Síðustu tólf mánuði hefur hún hækkað um 8,6% og á sama tímabili hækkaði neysluverðsvísitalan um 5,9%. Þetta þýðir að kaupmáttar launa á almennum og opinberum markaði hefur að meðaltali aukist um 2,6% á tímabilinu.
Nokkuð hefur hægt á 12-mánaða launahækkunum síðustu mánuði, hún hefur verið í kring um 8% síðan í júlí eftir að hafa verið í kring um 10% fyrri hluta árs. Ástæðan fyrir þessu er m.a. sú að áhrif launahækkana í tengslum við endurskoðun kjarasamninga um mitt ár 2006 hafa verið að detta út úr mælingunni.
Verulega hefur dregið úr 12-mánaða kaupmáttaraukningu. Hámarki náði hún í júní sl. þegar hún fór upp í 5,6% en er nú komin niður í 2,6%. Ástæðan fyrir þessu liggur annars vegar í því að hægt hefur á launahækkunum og hins vegar í því að verðbólga hefur aukist verulega frá því september.
Kjarasamningar á almennum markaði eru lausir. Þá er samningar margra félaga hjá hinu opinbera lausir á vormánuðum. Mikil óvissa ríkir því um launaþróun á næstu misserum.


Tengdar fréttir
Tengd tölfræði
Til baka