Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
20. apríl 2011 11:19

Kaupmáttur launa lækkaði í mars

Kaupmáttur launa hefur lækkaði í mars um 0,6% en að undanförnu hefur hækkun matar- og bensínverðs kynt undir verðbólgu og þar með minnkað kaupmáttinn. Á ársgrundvelli er hins vegar um 2,1% kjarabót að ræða. Á almennum vinnumarkaði hækkuðu laun að meðaltali um 6% en um rúm 2% hjá starfsmönnum hins opinbera á tímabilinu 2009 – 2010. Í janúar komu fram jákvæð áhrif af útsölum. Á súluritinu má sjá ársbreytingar á kaupmætti frá ársbyrjun 2008.

Kaupmátturinn er enn 10% lægri en í ársbyrjun 2008 eins og sjá má á línuritinu. Athyglisvert er að þrátt fyrir mikla gengislækkun krónunnar á árinu 2008 hefur kaupmáttur ekki fallið meir en raun ber vitni. Þetta er aðallega innlendri framleiðslu að þakka en erlendar vörur hafa hækkað mjög í verði frá því krónan byrjaði að veikjast snemma árs 2008.



Til baka


Jafnrétti

Allir einstaklingar skulu eiga jafna möguleika á að njóta...