Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 

Atvinnumál / 15. janúar 2010 

Skráð atvinnuleysi í desember var 8,2% miðað við 8,0% í mánuðinum á undan og 4,8% fyrir ári síðan. Atvinnuleysi meðal karla er 8,9% en meðal kvenna 7,3%. Atvinnuleysi er talsvert meira á höfuðborgarsvæðinu (8,8%) en landsbyggðinni (7,1%), mest er það þó á Suðurnesjum (13,6%).

Þeim sem verið hafa atvinnulausir lengur en eitt ár fjölgaði verulega í desember, eða úr 2.505 manns í 3.224 manns og eru því 21% allra atvinnulausra. Hlutfallið er hæst á Suðurnesjum (24%) og höfuðborgarsvæðinu (23%) og mun hærra meðal elstu aldurshópanna (27% hjá 55 ára og eldri) en þeirra yngstu (16% hjá 16-24 ára).

Atvinnulausir í lok desember

Alls voru 15.329 manns atvinnulausir í lok desember, þar af 12.543 sem voru atvinnulausir að fullu, 2.439 sem voru í hlutastörfum og 347 sem ekki óskuðu eftir fullu starfi.

Skömmu fyrir bankahrunið var fjöldi atvinnulausra karla og kvenna nánast sá sami. Fyrst eftir hrunið jókst hins vegar fjöldi atvinnulausra karla mun hraðar en kvenna. Í sumar dró nokkuð saman með kynjunum en síðustu mánuði hefur munurinn aukist aftur. Atvinnulausir karlar eru nú 9.062 og atvinnulausar konur 6.267.

Rétt fyrir bankahrunið var fjöldi atvinnulausra á höfuðborgarsvæðinu um 50% meiri en á landsbyggðinni. Eftir hrunið jókst þessi munur hratt allt fram á haust 2009. Síðustu mánuði hefur örlítið dregið úr þessum mun. Atvinnulausir á höfuðborgarsvæðinu eru nú 10.295 og atvinnulausir á landsbyggðinni 5.034.

Framan af síðasta vetri var ástandið verst í byggingariðnaði en atvinnuleysi jókst í öðrum greinum þegar líða tók á. Nú eru flestir atvinnulausir í mannvirkjagerð (2.629), verslun (2.542), sérfræðiþjónustu, leigustarfssemi og ýmissi þjónustu (samtals 1.940), iðnaði (1.560), flutningastarfssemi (988) og gistingu og veitingastarfsemi (791).

Atvinnuleysi hefur aukist mest meðal sérfræðinga, iðnaðarmanna, sérmenntaðs starfsfólks og vélamanna (fjór- til fimmfaldast). Það hefur líka aukist mikið meðal skrifstofufólks, stjórnenda, afgreiðslu- og þjónustufólks og verkafólks (tvö- til þrefaldast), en minnst meðal bænda og fiskimanna. [Ath. tölur frá í október 2009].

Atvinnuleysi er langmest í hópi þeirra sem aðeins hafa grunnskólamenntun, rúmlega helmingur atvinnulausra karla og kvenna eru í þessum hópi.

Hlutfallslega hefur atvinnuleysi verið meira í yngri aldurshópunum, tæplega helmingur atvinnulausra er yngri en 35 ára (48%) og um fimmtungur er undir 25 ára (18%). [Ath. tölur frá í október].

Alls voru 1.963 erlendur ríkisborgari án atvinnu í lok desember. Langflestir erlendra ríkisborgara á atvinnuleysisskrá voru starfandi í byggingariðnaði eða 626 (32% allra erlendra ríkisborgara á atvinnuleysisskrá).

Síðustu mánuði hefur langtímaatvinnuleysi aukist hratt. Fjöldi þeirra sem hafa verið án vinnu í sex mánuði eða lengur er nú 7.457 eða um helmingur allra þeirra sem eru á atvinnuleysisskrá. Þeim sem verið hafa atvinnulausir lengur en eitt ár fjölgaði verulega í desember, eða úr 2.505 manns í 3.224 manns og eru því 21% allra atvinnulausra. Hlutfallið er hæst á Suðurnesjum (24%) og höfuðborgarsvæðinu (23%) og mun hærra meðal elstu aldurshópanna (27% hjá 55 ára og eldri) en þeirra yngstu (16% hjá 16-24 ára). Ekki virðist vera mikill munur milli kynja hvað þetta varðar.

Vinnumarkaðsúrræði

Af þeim 12.543 manns sem voru atvinnulausir að fullu í desember voru 1.467 skráðir í einhverskonar úrræði hjá Vinnumálastofnun.

Þeir sem voru í átaksverkefnum, nýsköpunarverkefnum, starfsþjálfun/reynsluráðningu eða starfstengdum úrræðum töldu samtals 337 manns.

Þeir sem voru á námssamningum, í námstengdum úrræðum eða í smiðjum og klúbbum töldu samtals 777 manns.

Þeir sem voru í grunnúrræðum töldu 238 mans.

Þeir sem voru í úrræðum á vegum Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins töldu 115 manns.



Lykiltölur

Aðalkjarasamningur

er heiti sem notað er um kjarasamninga milli...