Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
08. september 2009 08:38

Jókst kaupmáttur ráðstöfunartekna í fyrra?

Samkvæmt tölum sem Hagstofa Íslands birti í gær, jukust ráðstöfunartekjur á mann um ríflega 15% í fyrra sem jafngildir því að kaupmáttur ráðstöfunarteknanna hafi aukist um 2,4%. Þetta kemur nokkuð á óvart í ljósi þess að mikil verðbólga samhliða lægri tekjum heimilanna s.s. vegna styttri vinnutími, mikils atvinnuleysi og launalækkana undanfarna mánuði gefur tilefni til þess að ætla að verulega hafi dregið úr kaupmætti ráðstöfunarteknanna.

Þegar rýnt er í tölurnar kemur í ljós að vöxt ráðstöfunarteknanna má að miklu leyti rekja til stór aukinna vaxtatekna einstaklinga sem til er komnar vegna breytinga sem gerðar voru á innheimtu gagna varðandi vaxtatekjur og eru þær upplýsingar ekki sambærilegar við upplýsingar frá árinu á undan.

Ef horft er framhjá vaxtatekjunum kemur í ljós að kaupmáttur ráðstöfunartekna á mann rýrnaði um ríflega 4% í fyrra. Sé lauslega leiðrétt fyrir vaxtatekjunum, má áætla að kaupmáttur ráðstöfunartekna, hafi rýrnað um u.þ.b. 3% í stað þess að aukast um 2,4%.

Til baka


Lykiltölur

Vísitala neysluverðs

Mælir breytingu á verði vörukörfu með fjölmörgum...