Alþýðusamband Ísland hefur á undanförnum árum ásamt aðildarfélögum sínum unnið markvist að því verkefni að tryggja að þátttaka erlends launafólks og fyrirtækja á íslenskum vinnumarkaði sé á forsendum laga og kjarasamninga og þeim hefðum sem hér gilda í samskiptum stéttarfélaga, launafólks og atvinnurekanda.
Í því starfi hefur miklu verið áorkað. Löggjöf er snýr að starfskjörum erlends launafólks hefur verið styrkt verulega, aðilar vinnumarkaðarins hafa tekið höndum saman í baráttunni gegn félagslegum undirboðum og stéttarfélög um land allt unnið ötullega við að koma upplýsingum á framfæri við erlent launafólk um réttindi þess og liðsinnt þeim þegar á hefur þurft að halda.
Ýmis konar kynningarefni hefur verið gefið út á erlendum tungum, einkum á pólsku, ensku og portúgölsku. Mörg aðildarfélaga ASÍ hafa einnig gefið út efni til nota í þessu starfi, til dreifingar úti á vinnustöðum og til birtingar á sínum heimasíðum.
Það efni sem ASÍ hefur haft forgöngu um að gefa út á síðustu árum er hér gert aðgengilegt fyrir alla á einum stað, ásamt ýmsum öðru efni er tengist þessu verkefni.
Langmest af þessu efni er á íslensku, þ.m.t. kynningarefni, lög, eyðublöð og fleira. Er það efni einkum ætlað fyrir starfsmenn stéttarfélaga sem sinna eftirliti með starfskjörum erlends launafólks úti á vinnustöðum. Nánar er gerð grein fyrir því efni hér fyrir neðan. Sjálft efnið er birt á undirsíðu hér til vinstri. Hluti þessa efnis er einnig til á pólsku, ensku, portúgölsku, tailensku og litháesku og er það efni aðgengilegt á undirsíðu hér til vinstri.
1. Upplýsingar um réttindi og skyldur
Fremst fer nýr bæklingur ASÍ og SA um réttindi og kjör erlendra starfsmanna á íslenskum vinnumarkaði sem kom út á prenti 25. september 2007 og kynntur var sama dag á fjölmennum fundi sem bar yfirskriftina "Átak gegn brotastarfsemi fyrirtækja og félagslegum undirboðum með útlendinga". Í þessu riti er að finna greinargóðar upplýsingar um launakerfi kjarsamninga, vinnutíma, orlofsmál, veikinda- og slysarétt, uppsagnir ráðningarsamninga, skil á félagsgjöldum o.fl. Ritið er gefið út á íslensku, pólsku og ensku, ásamt sameiginlegri útgáfu á íslensku og pólsku.
Hér er einnig birt samantekt ASÍ um atvinnu- og dvalarréttindi erlendra launamanna og lagalega stöðu þeirra eftir því hvort þeir koma frá EES-svæðinu eða utan þess og eftir því á hvaða forsendum þeir starfa hér á landi, þ.e. í beinni ráðningu eða á vegum erlendra verktaka eða starfsmannaleiga. Auk þess er þar að finna umfjöllun og leiðbeiningar um fyrirkomulag vinnustaðaeftirlits stéttarfélaga.
Bæklingurinn "Vinna á Islandi" er hér einnig birtur en hann hefur farið víða á síðustu árum og reynst mjög gagnlegur í starfi stéttarfélaganna úti á vinnustöðunum.
2. Lög og reglur
Tenglar á lög er varða málefni erlends launafólks.
3. Kjarasamningar o.fl.
Kjarasamningar eru meginheimildin um laun og önnur starfskjör á íslenskum vinnumarkaði og er gert grein fyrir meginefni þeirra í sameiginlegum bæklingi ASÍ og SA sem getið er um hér að framan. Þeir samningar eru aðgengilegir á heimasíðum stéttarfélaga og landssambanda þeirra.
Samkomulag ASÍ og SA um útlendinga á íslenskum vinnumarkaði frá 2004 er hins vegar birt hér. Samkomulagið hefur að geyma skuldbindingu aðila vinnumarkaðarins gagnvart því verkefni að stemma stigu við félagslegum undirboðum á íslenskum vinnumarkaði. Þar er einnig kveðið á rétt trúnaðarmanna stéttarfélaga eða stéttarfélaganna sjálfra sé ekki trúnaðarmaður á vinnustað til að afla upplýsinga beint frá atvinnurekanda um laun og önnur starfskjör erlendra launamanna sem þar starfa.
4. Bréf
Form að bréfum stéttarfélaga til Vinnumálastofnunar vegna laga um atvinnuréttindi útlendinga o.fl.
5. Tenglar
Tenglar á heimasíður opinberra stofnana sem með einum eða öðrum hætti koma að málefnum vinnumarkaðsins, þ.á. m. Vinnumálastofnun og Útlendingastofnun.
Hér eru jafnframt tenglar á heimasíður Alþjóðaseturs og Fjölmenningarseturs en þær stofnanir hafa gegnt lykilhlutverki við að auðvelda aðlögun útlendinga að íslenskum samfélagi.
______________________________________
Vinna á Íslandi - stutt kynningarefni
sjá önnur tungumál vinstra megin á síðunni.
Trabajo en Islandia - Espanol (spænska)
Ang pagtrabaho sa Iceland (tagalog)
Bæklingur á rússnesku
Rad na Islandu - Srpski - jezik (serbneska)
(í vinnslu)