11. janúar 2006
Alþýðusamband Íslands styður þá viðleitni löggjafans að styrkja og skýra refsiheimildir er varða heimilisofbeldi. Nauðsynlegt er að lögð sé áhersla á það í löggjöf að líkamlegt ofbeldi og aðrar misgjörðir milli nákominna sé meðhöndlað sérstaklega. Það frumvarp sem fyrir liggur miðar að því, en gengur þó ekki mjög langt í að ná utan um “heimilisofbeldi” sem sjálfstætt brot en um hvort það sé æskilegt og rétt eru nokkuð ólíkar skoðanir.
Eins og fram kemur í greinargerð hafa nágrannalönd okkar borið sig að með ýmsum hætti. Þau rök sem að baki því búa eru m.a., að heimili manna njóta að lögum sérstakrar friðhelgi sem “stofnanir” ef svo má að orði komast. Það æskilega við að skilgreina “heimilisofbeldi” sem sjálfstætt og sérstakt brot felst m.a. í að skilgreina ofbeldi sem unnið er innan þeirrar friðhelgi af einstaklingi sem þar dvelst sem sérstaklega alvarlegt, ekki einungis vegna tengsla brotamanns og brotaþola heldur einnig vegna vettvangs brotsins. Þá er m.a. haft í huga að ofbeldi framið á þeim vettvangi getur haft djúpstæð og alvarleg áhrif á fleiri en hinn beina brotaþola. Þau sjónarmið styðja örlítið aðra nálgun en fyrirliggjandi frumvarp gerir ráð fyrir.
F.h. Alþýðusambands Íslands,
Magnús M. Norðdahl hrl.,
lögfræðingur ASÍ
Til baka