Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
11. maí 2010

Frumvarp til laga um breyting á lögum um útlendinga, nr. 96/2002, með síðari breytingum (Schengen, framfærsla o.fl.)

Reykjavík, 10. maí 2010

Tilvísun: 201005-0007

 

Efni: Umsögn um frumvarp til laga um breyting á lögum um útlendinga, nr. 96/2002, með síðari breytingum (Schengen, framfærsla o.fl.).

Alþýðusamband Íslands styður þá breytingu sem fram kemur í 2. og 3. gr. frumvarpsins sem felur í sér að litið verður áatvinnuleysisbætur og greiðslur úr almannatryggingum sem trygga framfærslu einstaklinga.

Hvað varðar það atriði að greiðslur í formi félagslegrar aðstoðar ríkis eða sveitarfélags teljist ekki til tryggrar framfærslu bendir Alþýðusamband Íslands á að þeir einstaklingar sem sækja um búsetuleyfi hafa dvalist á landinu samfellt í a.m.k. fjögur ár. Þeir geta á því tímabili, rétt eins og fjöldi Íslendinga, lent í tímabundnum fjárhagsvandræðum og þannig neyðst til að þiggja félagslega aðstoð. Brýnt er að sú undanþága sem fram kemur í 5. máls. c-liðar 1. mgr. 15. gr., um að heimilt sé að víkja frá skilyrði um að greiðslur í formi félagslegrar aðstoðar ríkis eða sveitarfélags teljist ekki til tryggrar framfærslu,verði ekki túlkuð með of þröngum hætti.

 

Virðingarfyllst,

Dalla Ólafsdóttir

Lögfræðingur hjá ASÍ



Til baka


Atvinnuleyfi

eru leyfi sem gefin eru út til atvinnurekanda...