09. janúar 2006
Alþýðusambandi Íslands hefur borist til umsagna tillaga til þingsályktunar um nýskipan í starfs- og fjöltækninámi, 15. mál. Í greinargerð með tillögunni kemur fram að markmiðið með tillögunni sé m.a. að efla starfsnám, fjölga valkostum iðnmenntaðra og fólks með styttri formlega skólagöngu til að bæta menntun sína og draga úr brottfalli í framhaldsskólum. Jafnframt að auka sveigjanleika í skipulagi náms og eyða aðgreiningu á milli verknáms og bóknáms og efla starfsnám á öllum skólastigum. Starfsnám er í tillögunni skilgreint sem nám sem fellur undir iðn-, verk og listnám hvers konar í framhaldsskólum. Þá er lagt til að komið verði á fót fjöltækninámi á sérstökum námsbrautum, m.a. til að auka framboð á fjölbreyttu verk- og tækninámi að loknum framhaldsskóla.
Á vettvangi Alþýðusambands Íslands hefur ítrekað verið fjallað um mikilvægi þess að efla verk- og tækninám hvers konar og gera það að áhugaverðum valkosti fyrir nemendur á öllum skólastigum, ekki síst fyrir þá sem lokið hafa verk- og tæknimenntun á framhaldsskólastigi. Efling verk- og tæknimenntunar er mikilvæg fyrir nemendur sem hafa áhuga og hæfileika á sviði verk- og tæknigreina og íslenskt atvinnulíf sem ekki getur eflst og þróast á eðlilegan hátt nema til staðar sé öflugur hópur starfsmanna með víðtæka og góða verk- og tæknimenntun.
Hugmyndin sem fram kemur í tillögunni um að þróað verði sérstakt skólastig við hlið háskólanáms að loknum framhaldsskóla, fjöltækninám, þar sem sérstök áhersla er lögð á að efla verk- og tækniþekkingu með hagnýtu námi fyrir þá sem lokið hafa slíku námi í framhaldsskóla og/eða aflað sér víðtækrar og viðurkenndrar reynslu í atvinnulífinu er mjög áhugaverð. Þróunin varðandi framboð á námi á háskólastigi síðustu árin, sem einkum hefur falist í mikilli þenslu bóklegra greina gefur fullt tilefni til að skoða nýja kosti í þessum efnum. Víða í nágrannalöndum okkar hefur fjöltækninám, á ensku Polytechnical Universities, þróast með áhugaverðum hætti og tryggt mikilvæga viðbót við hefðbundið háskólanám. Slíkt ná hefur gjarnan verið þróað í samstarfi við rannsóknarstofnanir og hagnýtar rannsóknir í atvinnulífinu og þannig tryggt mikilvægt samhengi milli verk- og tæknimenntunar og hagnýtrar rannsóknarstarfsemi.
Í ljósi framanritaðs styður Alþýðusamband Íslands þá meginhugsun sem fram kemur í tillögunni um eflingu verk- og tæknimenntunar og nýrra leiða í þeim efnum.
Virðingarfyllst,
Halldór Grönvold,
aðstoðarframkvæmdastjóri ASÍ
Til baka