Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
26. nóvember 2005

Þingsályktunartillaga um fullorðinsfræðslu

Alþýðusamband Íslands tekur undir mikilvægi þess að efla og auka fullorðinsfræðslu þeirra sem minnsta menntun hafa hér á landi.Kannanir okkar og Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins sýna að um 40% fólks á vinnumarkaði hefur brýna þörf fyrir aukna menntun og starfsfræðslu.Þrátt fyrir þetta er engin sérstök löggjöf hér á landi sem skilgreinir rétt fólks til fræðslu eftir að tilteknum aldri er lokið, nema til það hyggist á nám í framhaldsskóla eða háskóla.Hafi einstaklingur lokið stúdentsprófi, sem er skilyrði fyrir námi á háskólastigi, eru enginn takmörk fyrir því hversu margar háskólagráður viðkomandi getur tekið með stuðningi ríkisins.Vilji einstaklingur sem á við lesblindu eða lestrarörðuleika að etja sækja slík námskeið (sem flest eru í boði utan hins hefðbundna skólakerfis) má hann kosta það sjálfur án aðstoðar frá hinu opinbera, en nýtur oftast stuðnings frá fræðslusjóði viðkomandi stéttarfélags hafi hann áunnið sér rétt þar.Þetta er óviðunandi og kallar á breytingar í jafnræðisátt þar sem allir landsmenn eigi rétt til að sækja sér nám eftir þörfum.

 

Þess má geta að Alþýðusambandið á fulltrúa í Verkefnisstjórn um símenntun á vegum menntamálaráðuneytisins, en eitt af verkefnum þessarar verkefnisstjórnar er að leggja mat á það hvort þörf sé á sérstakri löggjöf um fullorðinsfræðslu.

 

Alþýðusambandið telur mikilvægt að fá fram vilja Alþingis í þessari vinnu og styður því samþykkt þessarar þingsályktunartillögu.

 

 

Með kveðju,

Gylfi Arnbjörnsson

Framkvæmdastjóri ASÍ

 



Til baka


Veikindaréttur

er sá réttu sem þú átt til launa ef þú getur ekki stundað vinnu...