06. desember 2005
Alþýðusamband Íslands hefur fengið til umsagnar tillögu til þingsályktunar um samstarfsverkefni ríkis og sveitarfélaga um gjaldfrjálsan leikskóla, 26. mál.
Markmið með tillögunni er að gera leikskóladvöl gjaldfrjálsa í áföngum.
Alþýðusamband Íslands hefur þegar sett fram tillögur á þessu sviði (sjá nánar Greinargerð vinnuhóps um fátækt, bls. 46-56 í skýrslunni Velferð fyrir alla sem hægt er að nálgast á vef ASÍ http://www.asi.is). Í þeim tillögum kemur m.a. eftirfarandi fram:
Til að koma til móts við börn tekjuminni foreldra og til að koma í veg fyrir stéttaskiptingu meðal barna er mikilvægt að sveitarfélög dragi umtalsvert úr gjaldtöku vegna skólagöngu ... Einnig þurfa sveitarfélög að gera börnum kleift að stunda íþróttir og æskulýðsstörf án tillits til efnahags foreldra. Til að koma til móts við kostnað fjölskyldna í dreifbýli af því að senda börn í framhaldsskóla er mikilvægt að hækka styrki til jöfnunar á námskostnaði ...
Alþýðusamband Íslands tekur undir að stefna ber að því að gera leikskóladvöl gjaldfrjálsa í áföngum og mælir því með því að sú tillaga sem hér er til umsagnar verði samþykkt.
Virðingarfyllst,
Stefán Úlfarsson
Hagdeild ASÍ
Til baka