01. apríl 2009
Reykjavík 01.04 2009
Efni: Umsögn um frumvarp um breyting á skaðabótalögum.
Alþýðusamband Íslands fagnar því að frumvarp þetta sé lagt fram á Alþingi en í því felast efndir á 8.tl. yfirlýsingar ríkisstjórnar Íslands vegna frágangs kjarasamninga þann 17.2 2008 en þar segir:
8. Ríkisstjórnin mun beita sér fyrir breytingum á skaðabótalögum í þá veru að meðábyrgð á vinnuslysum verði ekki felld á starfsmann nema tjónið verði rakið til ásetnings eða stórfellds gáleysis starfsmanns.
Yfirlýsing þessi er í samræmi við kröfu Alþýðusambands Íslands og var ein forsenda þess að kjarasamningar tókust umrætt sinn.
Til baka