Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
09. mars 2006

þingsályktunartillaga um stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2006-2009, 391. mál.

Alþýðusambandi Íslands hefur borist til umsagnar tillaga til þingsályktunar um stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2006-2009, 391. mál.

Stefna ASÍ í atvinnumálum Framtíð fyrir alla gengur út á samþættingu atvinnu-, félags- og efnahagsstefnu.

Ýmislegt í þeirri byggðaáætlun sem hér er til umsagnar er í ágætu samræmi við stefnu ASÍ. Þetta á m.a. við um það markmið áætlunarinnar að landshlutakjarnar verði efldir svo og það markmið að fólki sé gert kleyft að laga sig að örri samfélagsþróun og hröðum breytingum á atvinnuháttum m.a. á grundvelli menntunar.

Það sem er síður í samræmi við stefnu ASÍ og sem Alþýðusambandið gerir alvarlegar athugasemdir við er eftirfarandi:

 

  • Í fyrsta lagi, þá felst þversögn í því markmiði að „landshlutakjarnar skulu efldir“ en jafnframt „hugað sérstaklega að leiðum til þess að treysta búsetu í þeim byggðarlögum sem glímt hafa við viðvarandi fólksfækkun“. ASÍ telur að það þurfi að taka af allan vafa um að byggðastefna á ekki að snúast um kyrrstöðu heldur um eðlilegar breytingar í búsetu sem samræmast þróun nútímalegra atvinnuhátta.

·Í öðru lagi, þá eru efnahagsmál ekki nægjanlega vel fléttuð inn í byggðaáætlunina. Of lítil áhersla á efnahagsþáttinn getur leitt til þess að tíðar og kröftugar sveiflur t.d. í gengi þurrki út allan ávinning í atvinnuþróun. ASÍ telur að til að draga úr slíkri áhættu sé nauðsynlegt að formbinda samstarf stjórnvalda, Seðlabankans og aðila vinnumarkaðarins um að viðhalda stöðugleika.

·Í þriðja lagi, þá vantar í áætlunina leiðsögn um tengsl byggðastefnu við almenna stefnu í atvinnuþróunarmálum. ASÍ telur að til að fjárfestingar í atvinnuþróun verði markvissar þurfi samræmdar aðgerðir í byggðastefnu, atvinnugreinastefnum og vísinda- og tæknistefnu.

f.h. Alþýðusambands Íslands,

 

Stefán Úlfarsson



Til baka


Fjölmenning

Hugtakið gengur í meginatriðum út á að tryggja...