Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 

Vinnutími


Ákvæði um vinnutíma launafólks er annars vegar að finna í lögum um 40 stunda vinnuviku en hins vegar í kjarasamningum.

Í lögum um 40 stunda vinnuviku er að finna þá meginreglu að starfsmaður í fullu starfi telst hafa skilað fullri vinnuskyldu samkvæmt ráðningarsamningi vinni hann 8 tíma á dag 5 daga vikunnar, eða alls 40 vinnustundir.

Það eru hins vegar kjarasamningar einstakra stéttarfélaga sem svara því raun hvernig vinnutíma starfsmanna skuli háttað.

Í þeim er kveðið á um svokallaðan virkan vinnutíma en með því hugtaki er almennt átt við þann tíma sem atvinnurekandi greiðir fyrir að frádregnum kaffihléum á dagvinnutímabili.

Svo dæmi sé tekið þá segir í aðalkjarasamningi SGS og SA sem gildir frá 1. febrúar 2008, gr. 2.1.1, að virkur vinnutími í dagvinnu á viku skuli vera 37 klst. og 5 mín. og að vinnutíma skuli hagað með eftirfarandi hætti:

a.  kl. 07:55-17:00 mánudaga til föstudaga.

b.  kl. 07:30-16:35 mánudaga til föstudaga.

Heimilt er að haga dagvinnutíma með öðrum hætti, ef vinnuveitandi og verkamenn koma sér saman um það. Þó skal dagvinna hvers starfsmanns ávallt unnin með samfelldri vinnuskipan á degi hverjum og aldrei hefjast fyrr en kl. 07:00. Upphaf dagvinnu hvers starfsmanns skal ákveðið í ráðningarsamningi hans og verður ekki breytt nema að undangenginni uppsögn eða með samkomulagi.

Í kjarasamningum er mælt fyrir um hver vikulegur vinnustundafjöldi  starfsmanna í fullu starfi skuli vera, (talið í virkum vinnustundum eins og ofan greinir), og um leið skilgreindur sá tímarammi frá morgni til kvölds sem þeirri vinnu skuli skilað á frá mánudegi til föstudags. Þessi daglegi tímarammi er kallaður dagvinnutímabil. Dagvinnutímabilið er haft rýmra en dagleg vinnuskylda starfsmanna og býður atvinnurekendum og starfsmönnum upp á ákveðinn sveigjanleika við ákvörðun eða samninga  um hvenær vinna skuli hefjast að morgni og ljúka að kvöldi. Dagleg vinnuskylda starfsmanns samkvæmt ráðningarsamningi getur þannig verið 8 klst. en dagvinnutímabilið 10 klst.

Ítarlega er síðan fjallað um vinnu- og hvíldartímareglur í kaflanum um Aðbúnað og hollustuhætti.



Aðilaskipti að fyrirtækjum

eða hluta þess fela það í sér að nýr aðili...