Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 

Starfsfólk með fjölskylduábyrgð

Samþykkt ILO nr. 156 um starfsfólk með fjölskylduábyrgð var gerð á þingi ILO 1981. ASÍ barðist lengi fyrir því að samþykktin yrði fullgilt hér landi sem nú hefur verið gert. Samþykktinni fylgja tilmæli þar sem aðildarríki ILO eru hvött til að stuðla að jafnræði milli vinnandi karla og kvenna sem hafa fjölskylduábyrgð. Markmiðið er að auka jafnrétti karla og kvenna og jafna aðstöðu þeirra sem bera fjölskylduábyrgð og hinna sem ekki bera slíka ábyrgð.

Á vef stjórnarráðsins eru helstu skuldbindingar fullgildingarinnar taldar eftirfarandi:
· Að setja það markmið í stjórnarstefnu sína að gera einstaklingum með fjölskylduábyrgð, sem eru í atvinnu eða óska eftir að gegna launuðu starfi, kleift að framfylgja þeim rétti sínum án þess að verða fyrir mismunun og að svo miklu leyti sem mögulegt er án árekstra milli atvinnu og fjölskylduábyrgðar.
· Að gera allar mögulegar ráðstafanir til að gera starfsfólki með fjölskylduábyrgð kleift að nýta rétt sinn til frjáls vals atvinnu og jafnframt að taka tillit til þarfa þeirra varðandi starfskjör, vinnuskilyrði og félagslegt öryggi.
· Að gera ráðstafanir til þess að tekið sé tillit til þarfa starfsfólks með fjölskylduábyrgð á sveitarstjórnarstigi. Í þessu sambandi er sérstaklega bent á barnagæslu og fjölskylduaðstoð.
· Að stuðla að upplýsingum og fræðslu sem leiði til almennari skilnings á meginreglunni um jafna möguleika og jafnrétti til handa körlum og konum í atvinnu og á vandamálum starfsfólks með fjölskylduábyrgð.
· Að gera ráðstafanir, svo sem á sviði starfsfræðslu og þjálfunar til þess að gera starfsfólki með fjölskylduábyrgð kleift að hefja og halda áfram þátttöku í atvinnulífinu, svo og að koma á vinnumarkaðinn á ný eftir fjarveru vegna þessarar ábyrgðar.
· Að tryggja að fjölskylduábyrgð sem slík verði ekki gild ástæða til uppsagnar starfs.
· Að framfylgja ákvæðum samþykktarinnar með lögum, reglugerðum, kjarasamningum, starfsreglum, gerðardómum, dómsúrskurðum eða með hverjum öðrum þeim hætti sem við kann að eiga, að teknu tilliti til aðstæðna í viðkomandi landi.



Vísitala neysluverðs

Mælir breytingu á verði vörukörfu með fjölmörgum...