Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
14. apríl 2011 09:56

Atvinnuleysi í yngsta aldurhópnum minnkar

Atvinnuleysi í mars mældist 8,6% og er óbreytt frá febrúarmánuði. Þetta kemur fram í skýrslu Vinnumálastofnunar um stöðu á vinnumarkaði í mars.  Atvinnuleysi hjá körlum er 9,2% og 7,8% hjá konum. Atvinnuleysið er 9,2% á höfuðborgarsvæðinu en 7,5% á landsbyggðinni.

Langtímaatvinnuleysi (atvinnuleysi í 6 mánuði eða lengur) hefur aukist milli mánuðaog er nú svo komið að 8189 manns falla í þennan hóp og er aukningin 527 frá febrúarmánuði. Nú er svo komið að langtímaatvinnulausir eru um 55% af atvinnulausum í heild. Greina má jákvæða þróun í yngstu hópunum en 3147 voru atvinnulausir í aldurshópnum 16 -24 ára í mars 2010. Í dag er þessi tala komin niður í 2741 og er átaksverkefni Vinnumálastofnunar sem nefnist UFA (Ungt fólk til athafna) líkleg skýring á fækkun atvinnulausra í þessum aldurshópi.



Til baka


Hagvöxtur

er aukning landsframleiðslu á föstu verðlagi milli ára...