Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
16. febrúar 2010 04:33

Atvinnumál á krepputímum – staða eftir landshlutum

Atvinnumálanefnd ASÍ stóð fyrir fundi um atvinnumál á krepputímum miðvikudaginn 13. janúar sl. Á fundinum var m.a. farið yfir stöðu og horfur í atvinnumálum eftir landshlutum. Einnig var fjallað um þau vinnumarkaðsúrræði sem í boði hafa verið og reynsluna af starfsemi vinnumarkaðsráðanna.

Það kemur ekki á óvart að ástandið er hvað verst í greinum tengdum mannvirkjagerð svo og verslun og þjónustu. Það er athyglisvert að iðnaðarmenn hafa á mörgum stöðum haft þónokkuð að gera eftir að kreppan skall á, m.a. í viðhaldsverkefnum fyrir heimili og sveitarfélög. Víða eru talsverðar vonir bundnar við að ferðaþjónustan muni blómstra í ár. Bæði á Suðurlandi og Vesturlandi skánar atvinnuástandið þeim mun fjær sem dregur frá höfuðborgarsvæðinu.

Misjafnt er milli landshluta hvernig þjónustu við atvinnuleytendur er háttað. Sumstaðar vinna hinir ýmsu þjónustuaðilar meira og minna sitt í hvoru lagi að vinnumarkaðsaðgerðum en annars staðar hafa aðilar með sér náið samstarf. Þar sem samstarfið er náið hefur gjarnan verið komið upp öflugri þjónustumiðstöð þar sem m.a. er leiðbeint um þau úrræði sem í boði eru. Mikið framboð virðist vera af hvers konar námsúrræðum en greinilegur skortur er á úrræðum sem eru starfstengd.

Almennt virðist reynslan af starfsemi vinnumarkaðsráðanna allgóð þó vissulega megi bæta eitt og annað í starfsemi þeirra.

Skýrslur um stöðu og horfur:

   Höfuðborgarsvæðið
   Suðurnes
   Suðurland
   Austurland
   Norðurland eystra
   Norðurland vestra
   Vestfirðir
   Vesturland

Nánar um fundinn, sjá hér



Til baka


Kjarasamningur

eru samningar milli stéttarfélags og atvinnurekenda...