Félagssjóður
Samkvæmt 2. mgr. 6. gr.
laga nr. 55/1980 um starfskjör launafólks er atvinnurekanda skylt að halda eftir af launum starfsmanns iðgjaldi hans til viðkomandi stéttarfélags samkvæmt þeim reglum sem kjarasamningar greina. Þannig greiða félagsmenn félagsgjald, en atvinnurekandi heldur því eftir af launum. Félagssjóður stendur undir rekstri félagsins. Tilgangur félagssjóðs er að standa undir rekstri og veitir félagið almennt ekki styrki til einstakra félagsmanna. Um greiðsluskyldu án aðildar er fjallað í kaflanum um
félagsgjöld.
Sjúkrasjóður
Atvinnurekendur greiða til sjúkrasjóðs eða styrktarsjóðs ákveðna prósentu af launum. Í 6. gr. starfskjaralaga nr. 55/1980 segir að öllum atvinnurekendum sé skylt að greiða í sjúkrasjóði og orlofssjóði viðkomandi stéttarfélaga iðgjöld þau sem aðildarsamtök vinnumarkaðarins semja um hverju sinni og samkvæmt þeim reglum sem kjarasamningar greina. Sjúkrasjóður er sá sjóður stéttarfélaga sem mest er leitað eftir styrkjum úr.
Atvinnurekendum er skylt samkvæmt 7. gr. lögum um rétt verkafólks til uppsagnarfrests frá störfum og til launa vegna sjúkdóms- og slysaforfalla nr. 19/1979 að greiða 1% af útborguðu kaupi verkafólks í sjúkrasjóð viðkomandi stéttarfélags, nema um hærri greiðslur hafi verið samið í kjarasamningum. Lagaákvæði um greiðslur til sjúkrasjóða komu fyrst 1974 en fyrir þann tíma höfðu allmörg verkalýðsfélög stofnað sjúkrasjóði og samið um greiðslur þangað í kjarasamningum.
Forræði sjóðanna er alfarið í höndum félaganna og þær reglur sem þeir starfa eftir hafa félögin sjálf sett. Tilgangur sjúkrasjóðs er fyrst og fremst að greiða félagsmanni bætur í sjúkra- og slysatilfellum eftir að launagreiðslum frá atvinnurekanda lýkur. Reglur um lengd bótatímabila, fjárhæð bóta og önnur grundvallarréttindi í sjúkrasjóðunum hafa verið samræmdar á grundvelli 42. gr. gildandi laga ASÍ (2006). Lágmarksgreiðslur og réttindi eru sem hér segir:
Dagpeningar:
-
í veikinda- og slysaforföllum í 120 daga (4 mánuði), að loknum greiðslum skv. veikinda- og slysaréttarákvæðum kjarasamninga. Dagpeningar skulu að viðbættum bótum almannatrygginga, greiðslum úr slysatryggingu launafólks eða annarri lögbundinni tryggingu, ekki nema lægri fjárhæð en 80% af meðaltali þeirra heildarlauna sem iðgjald hefur verið greitt af á síðustu 6 mánuðum.
-
í 90daga (3 mánuði), að loknum kjarasamningsbundnum greiðslum launagreiðanda vegna langveikra og alvarlega fatlaðra barna. Greiðslur skulu ekki nema lægri fjárhæð m.v. starfshlutfall sjóðfélaga en 80% af meðaltali þeirra heildarlauna sem iðgjald hefur verið greitt af á síðustu 6 mánuðum. Með langveikum börnum er átt við börn undir 18 ára aldri sem greinast með alvarlegan og/eða langvinnan sjúkdóm og þarfnast sérstakrar umönnunar. Með alvarlega fötluðum börnum er átt við börn undir 18 ára aldri sem greinast með alvarlega greindarskerðingu, geðraskanir eða alvarlega líkamlega hömlun og þarfnast sérstakrar umönnunar.
-
í 90 daga (3 mánuði) vegna mjög alvarlegra veikinda maka. Greiðslur skulu ekki nema lægri fjárhæð m.v. starfshlutfall sjóðfélaga en 80% af meðaltali þeirra heildarlauna sem iðgjald hefur verið greitt af á síðustu 6 mánuðum.
Réttur til dagpeninga endurnýjast á hverjum 12 mánuðum, hlutfallslega eftir því sem hann er nýttur, talið frá þeim degi sem dagpeningagreiðslum líkur hverju sinni og greiðslur iðgjalda hefjast að nýju.
Eingreiddar dánarbætur við andlát virks og greiðandi sjóðfélaga sem nemi 180.000.- krónum m.v. starfshlutfall hans. Rétthafar bóta eru maki sjóðfélaga og börn hans undir 18 ára aldri. Bótafjárhæð miðast við launavísitölu 1. júlí 2006 og tekur sömu breytingum og hún.
Á grundvelli laga ASÍ hefur verið gefin út "Viðmiðunarreglugerð fyrir sjúkrasjóði aðildarfélaga ASÍ".
Ágreiningur um greiðsluskyldu til sjúkrasjóðs
Deilur hafa risið um skyldu atvinnurekenda til greiðslu í sjúkrasjóði og rétt starfsmanna til greiðslu úr sjóðunum. Af dómunum má ráða að greiðsluskylda iðgjalda til sjúkrasjóða er tengd því að þeir starfsmenn sem greiðslan tengist öðlist rétt á sjúkrabótum úr sjóðunum. Með öðrum orðum má segja að eignist menn ekki rétt á greiðslum úr sjúkrasjóðum er atvinnurekanda ekki skylt að skila iðgjöldum til sjóðsins.
Í Hrd. 1988:1464 var deilt um skyldu atvinnurekanda til að greiða í sjúkrasjóð tiltekins stéttarfélags iðgjöld af starfsmönnum sem voru ekki félagsmenn þess stéttarfélags. Atvinnurekandinn var hins vegar aðili að Vinnuveitendasambandi Íslands og þar með taldi dómurinn hann vera bundinn af kjarasamningum þess við stéttarfélagið. Greiðsluskyldan væri ótvíræð samkvæmt ákvæðum laga og kjarasamninga og í Hæstarétti sagði að ekki skipti máli hvort starfsmenn atvinnurekandans væru félagsbundnir eða ekki. Við það yrði að miða samkvæmt því sem fram hefði komið í málinu og reglum sjóðanna að við greiðslu til þeirra öðlist starfsmenn atvinnurekanda full og óskorðuð réttindi til úthlutunar úr sjóðum þessum.
Í dómi bæjarþings Reykjavíkur 26. febrúar 1982 var einnig deilt um greiðsluskyldu atvinnurekanda til sjúkrasjóðs vegna manna sem ekki voru félagsmenn í stéttarfélaginu. Félagið hélt því fram að öllum atvinnurekendum væri skylt að greiða iðgjöld í sjúkra- og orlofssjóði viðkomandi stéttarfélags en atvinnurekandi hélt því aftur á móti fram að forsenda fyrir greiðslu atvinnurekenda á iðgjöldum í sjúkra- og orlofssjóði væri að launamennirnir væru félagsmenn í viðkomandi stéttarfélagi. Dómurinn komst að þeirri niðurstöðu að þar sem einungis félagsmenn í félaginu ættu rétt til styrkja úr sjúkrasjóði yrði ekki talið að atvinnurekandanum hafi verið skylt að greiða iðgjöld til sjóða félagsins þrátt fyrir skýlaus ákvæði laga um greiðsluskyldu þar. Þessu máli var áfrýjað til Hæstaréttar en var vísað frá vegna vanreifunar.
Eins og fyrr segir byggist greiðsluskylda til sjúkrasjóðs á 7.gr. laga nr. 19/1979 en þar segir: "Vinnuveitendur skulu greiða 1% af útborguðu kaupi verkafólks í sjúkrasjóð viðkomandi stéttarfélags, nema um hærri greiðslur hafi verið samið í kjarasamningum." Í 6.gr. laga um starfskjör launafólks og skyldutryggingu lífeyrisréttinda nr. 55/1980 er greiðsluskylda þessi ítrekuð en einnig aukin og einnig látin taka til orlofssjóðs. Þar segir: "Öllum atvinnurekendum er skylt að greiða í sjúkrasjóði og orlofssjóði viðkomandi stéttarfélaga iðgjöld þau, sem aðildarsamtök vinnumarkaðarins semja um hverju sinni, og samkvæmt þeim reglum, sem kjarasamningar greina." Samkvæmt þessu er ekki til staðar ótvíræð greiðsluskylda til annarra sjóða stéttarfélaganna.
Á það var látið reyna í Hrd. nr. 114/2004. Í dómi Hæstaréttar segir segir að í 1. mgr. 6. gr. laganna sé kveðið á um skyldur allra atvinnurekenda að greiða í sjúkra- og orlofssjóði samkvæmt kjarasamningum. Slíka kröfu eigi stéttarfélögin vegna þessara tvenns konar sjóða og sé það tæmandi talning. Kröfur þeirra vegna annarra sjóða en þar séu tilgreindir verði ekki reistar á þessu lagaákvæði og brysti félaginu heimild til þess að krefja atvinnurekandann um gjöldin og var hann sýknaður.
Orlofssjóður
Orlofssjóður eða orlofsheimilasjóður stendur undir kaupum og rekstri á orlofshúsum stéttarfélaga. Einnig styrkja orlofssjóðir margra stéttarfélaga félagsmenn sína við kaup á orlofsferðum innanlands og utan. Samkvæmt flestum kjarasamningum er framlag atvinnurekanda til orlofssjóða 0,25% af útborguðu kaupi verkafólks.
Iðgjaldagreiðslur atvinnurekenda til sjúkra- og orlofssjóða njóta forgangsréttar í þrotabú atvinnurekanda samkvæmt lögum um gjaldþrotaskipti. Umsamdar greiðslur atvinnurekanda í sjúkra- orlofs- og styrktarsjóði njóta lögtaksréttar og eru aðfararhæfar án undangengins dóms samkvæmt 11. tl.1. gr. laga nr. 29/1885 um lögtak samanber 10. tölulið 1. gr. laga nr. 90/1989 um aðför.
Fræðslusjóður
Aðildarfélög ASÍ hafa samið við atvinnurekendur um að þeir greiði tiltekið gjald í starfsmenntasjóði. Svo dæmi sé tekið þá er í aðalkjarasamningi SGS kveðið á um frá og með 1. janúar 2007 greiði atvinnurekendur í sjóði til fræðslumála samtals 0,15%.
Vinnudeilusjóður
Vinnudeilusjóður eða verkfallssjóður stendur undir kostnaði og er ætlað að styrkja félagsmenn í vinnudeilum. Gert er ráð fyrir að honum eins og öðrum sjóðum sé skipað með sérstakri reglugerð sem samþykkt er á aðalfundi. Tekjur vinnudeilusjóðs eru yfirleitt tiltekinn hundraðshluti félagsgjalda.
Lífeyrissjóður
Á almennum vinnumarkaði var fyrst gerður heildarkjarasamningur um lífeyrissjóði á árinu 1969. Samkvæmt honum var tekin upp almenn skylduaðild að lífeyrissjóðum viðeigandi stéttarfélaga. Sjóðirnir starfa á félagslegum grunni samtryggingar og byggjast öll réttindi í þeim á þeim fjármunum sem þeir taka við og ávaxta. Viðkomandi stéttarfélög og samtök atvinnurekenda skipa stjórnir sjóðanna að jöfnu og stýra þeim. Síðasta heildarendurskoðun samningsins frá 1969 fór fram með samningi ASÍ og VSÍ þann 12.12 1995. 8.12 2004 var síðan samið um sérstaka ráðstöfun á viðbótarframlagi atvinnurekenda og um aldurstengda réttindaávinnslu. Lífeyrissjóðirnir mynda einn af hornsteinum íslenska velferðarkerfisins og þótti stjórnvöldum nauðsynlegt að setja um þá sérstök heildarlög og var það gert með lögum 129/1997.
Endurhæfingarsjóður
Í kjarasamningum þeim sem undirritaðir voru þann 17.2 2008 gerðu ASÍ og Samtök atvinnulífsins samkomulag um nýtt fyrirkomulag endurhæfingar. Markmið aðila er að koma að málum eins snemma og kostur er til að stuðla að því að hver einstaklingur verði svo virkur á vinnumarkaði sem vinnugeta hans leyfir. Sérstakur sjóður, Endurhæfingarsjóður, verður stofnaður í því skyni að skipuleggja og hafa umsjón með störfum þjónustufulltrúa sem verða aðallega á vegum sjúkrasjóða stéttarfélaganna og greiða kostnaðinn af störfum þeirra og kostnaðinn af ráðgjöf fagaðila. Ennfremur mun Endurhæfingarsjóður hafa fjármuni til þess að greiða fyrir kostnað við úrræði og endurhæfingu til viðbótar því sem veitt er af hinni almennu heilbrigðisþjónustu. Miðað er við að í heild verði ráðstafað 0,39% af launum til Endurhæfingarsjóðs. Í fyrsta áfanga er samkomulag milli Alþýðusambands íslands og Samtaka atvinnulífsins um að leggja sérstakt 0,13% launatengt gjald, Endurhæfingargjald, á launagreiðendur á sama gjaldstofn og iðgjald til lífeyrissjóða frá og með 1. júní 2008. Í öðrum áfanga sem hefst í ársbyrjun 2009 er miðað við að ríkissjóður leggi Endurhæfingarsjóði til sömu upphæð og launagreiðendur samkvæmt sérstöku samkomulagi. Í þriðja áfanga sem hefst í ársbyrjun 2010 munu Alþýðusamband íslands og Samtök atvinnulífsins beita sér fyrir því að lífeyrissjóðir á samningssviði þeirra greiði til Endurhæfingarsjóðs sama hlutfall og launagreiðendur. Ennfremur munu Alþýðusamband íslands og Samtök atvinnulífsins leita leiða til þess að aðrir lífeyrissjóðir greiði til Endurhæfingarsjóðs eftir því sem við á þannig að full framlög fáist til sjóðsins vegna þeirra einstaklinga sem Endurhæfingargjald er greitt af. Umræddur sjóður var formlega stofnaður í maí 2008.