Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 

Félagsdómur


Hlutverk Félagsdóms er að dæma í réttarágreiningi aðila vinnumarkaðarins.

Samkvæmt 44. gr. laganna nr. 80/1938 um stéttarfélög og vinnudeilur er verkefni Félagsdóms að fjalla um:

1. mál sem rísa út af kærum um brot á lögum nr. 80/1938 og tjóni sem orðið hefur vegna ólögmætra vinnustöðvana,  
2. mál sem rísa út af kærum um brot á vinnusamningi eða út af ágreiningi um skilning á vinnusamningi eða gildi hans,
3. önnur mál milli verkamanna og atvinnurekenda, sem aðilar hafa samið um að leggja fyrir dóminn, enda séu að minnsta kosti þrír af dómendum því meðfylgjandi.

Meirihluti mála sem rekin eru fyrir Félagsdómi falla undir annan tölulið lið 44. gr., þ.e. ágreiningur aðila snýst um túlkun á ákvæðum kjarasamninga.

Mál sem höfðuð eru til innheimtu vangoldinna launa eru ekki rekin fyrir Félagsdómi heldur heyra þau undir hina almennu dómstóla.



Félagsleg undirboð

Félagsleg undirboð háttsemi erlendra fyrirtækja sem lýsir sér einkum í því að starfsmönnum þeirra eru ekki greidd laun í samræmi við lög og kjarasamninga í gistiríki, þeim er ekki tryggður sá aðbúnaður og öryggi á vinnustað sem lög gera kröfu um og svikist er um að greiða lög- og samningsbundin gjöld af þeim til stofnana samfélagsins, þ.m.t. stéttarfélaga. Með þessu er brotið bæði á hagsmunum viðkomanda starfsmanna og grafið undan stofnunum samfélagsins, tiltrú almennings á þeim og vilja þeirra til að fjármagna þær með sköttum og öðrum gjöldum.